![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Earth_equator_northern_hemisphere.png/640px-Earth_equator_northern_hemisphere.png&w=640&q=50)
Miðbaugur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Miðbaugur er stórbaugur, sem liggur umhverfis reikistjörnu og skiptir henni í tvö jafn stór hvel, norður- og suðurhvel. Miðbaugsplanið er þannig mitt á milli skauta hnattarins og hornrétt á möndulinn. Breiddargráða miðbaugs er 0°, samkvæmt skilgreiningu. Punktar á miðbaug ferðast hraðar vegna möndulsnúnings en allir aðrir punktar á hnettinum. Oftast er átt við miðbaug jarðar, en ummál jarðar um miðbaug er um 40.070 km.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bf/Equator_sign_kenya.jpg/320px-Equator_sign_kenya.jpg)
Sólin er þverlæg miðbaug jarðar (beint fyrir ofan) á hádegi á dögum jafndægurs. Enn fremur er hver einasti dagur um 12 tímar að lengd á miðbaug. Að næturlagi virðast allar stjörnur ferðast í hálfhring, með miðpunkt á sunnanverðasta eða norðanverðasta punkti sjóndeildarhringsins.
Á milli jafndægra í mars og september er norðurhvel jarðar hallandi að sólu að punkti sem kallast nyrðri hvarfbaugur, eða krabbabaugur, sem er nyrsti punktur þar sem sólin verður þverlæg. Sambærilegur staður á suðurhveli heitir syðri hvarfbaugur, eða steingeitarbaugur. Sólin er beint ofan við þessa staði á sumar- og vetrarsólstöðum (sem víxlast eftir jarðarhvelum).
Árstíðir á hitabeltissvæðum og við miðbaug eru mjög frábrugnar árstíðum í tempruðu loftslagi eða á pólsvæðum. Á mörgum hitabeltissvæðum eru þekktar tvær meginárstíðir - þurrkatími og regntími, en flestir staðir alveg við miðbaug eru blautir árið um kring. Þrátt fyrir þetta geta árstíðir verið fjölbreyttar, enda spila margir þættir inn í, svo sem fjarlægð frá úthöfum og hæð yfir sjávarmáli.
Sumir loftslagsfræðingar skilgreina loftslagið umhverfis miðbaug sem miðbaugsloftslag, frekar en eingöngu hitabeltisloftslag, ef að mismunurinn á meðalhitastigi á heitustu og köldustu mánuðum er minni en eða jöfn 3°C. Loftslagsfræðingurinn Vladimir Köppen skilgreindi upprunalega árslega hitafarsbreytingu upp á 5 °C sem miðbaugsloftslag, og setti stafinn „i“ eftir viðeigandi tveggja stafa flokkun (Af, Am, Aw eða As) þessarra loftslaga sem passa við þennan staðal, en þröskuldinum var síðar breytt í 3 °C, að hluta til þess að minnka muninn á „miðbaugs“ og „hitabeltis“ loftslagsgerðunum, með tilliti til flatarmáls. Ef að tiltekinn staður uppfyllir ekki skilyrðin fyrir stafinn „i“, þá er ekki bætt við þriðja staf í loftslagsflokkuninni.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Earth_equator_northern_hemisphere.png/640px-Earth_equator_northern_hemisphere.png)
Yfirborð jarðar við miðbaug er að mestu úthöf. Staðir sem miðbaugur fer í gegnum eru:
- São Tomé og Príncipe - fer í gegnum Ilhéu das Rolas, lítil eyja í eyjaboganum.
- Gabon
- Lýðveldið Kongó
- Kongó
- Úganda
- Kenýa
- Sómalía
- Maldives Eyjur
- Pini - lítil eyja nálægt Súmötru
- Sumatra
- Lingga og ein lítil eyja í viðbót nálægt Súmötru
- Borneo - Kalimantan
- Sulawesi
- Halmahera
- Smáar eyjur nálægt Halmahera
- Gilbert Eyjur
- Phoenix Eyjur - fer rétt fram hjá Bakereyju
- Line Eyjur - fer rétt fram hjá Jarviseyju
- Galapagós Eyjar (gengur um Isabelaeyju)
- Ekvador
- Kolombía
- Brasilía