Lýðveldið Kongó
land í Mið-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lýðveldið Kongó, einnig kallað Vestur-Kongó eða Kongó-Brazzaville (til aðgreiningar frá Austur-Kongó sem áður hét Saír) er land í Mið-Afríku. Það á landamæri að Gabon, Kamerún, Mið-Afríkulýðveldinu, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, og Angóla.
République du Congo | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Unité, Travail, Progrès (franska: Eining, vinna, framfarir) | |
Þjóðsöngur: La Congolaise | |
Höfuðborg | Brazzaville |
Opinbert tungumál | franska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Denis Sassou-Nguesso |
Forsætisráðherra | Anatole Collinet Makosso |
Sjálfstæði | |
• frá Frakklandi | 15. ágúst, 1960 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
64. sæti 342.000 km² 3,3 |
Mannfjöldi • Samtals (2018) • Þéttleiki byggðar |
117. sæti 5.244.359 12,8/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2019 |
• Samtals | 32,516 millj. dala (150. sæti) |
• Á mann | 7.119 dalir (145. sæti) |
VÞL (2019) | 0.574 (149. sæti) |
Gjaldmiðill | CFA-franki |
Tímabelti | UTC+1 |
Þjóðarlén | .cg |
Landsnúmer | +242 |
Lýðveldið Kongó var áður frönsk nýlenda sem hét Franska Kongó og fékk sjálfstæði 1960. Eftir valdarán undir forystu herforingjans Marien Ngouabi árið 1968 var landið gert að Alþýðulýðveldinu Kongó og tekin upp náin stjórnmálatengsl við Sovétríkin og Austurblokkina. Árið 1977 var Ngouabi myrtur og við tók herforingjastjórn sem ríkti yfir landinu til 1992. Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins var Pascal Lissouba. Deilur milli hans og forsetaframbjóðandans (og fyrrum forsetans) Denis Sassou Nguesso í aðdraganda forsetakosninga 1997 leiddu til vopnaðra átaka. Sassou náði völdum með aðstoð herliðs frá Angóla. Sassou gerði breytingar á stjórnarskrá landsins sem juku völd forseta og lengdu kjörtímabil hans. Breytingarnar, og þær kosningar sem haldnar hafa verið síðan, hafa verið harkalega gagnrýndar af alþjóðasamtökum.
Stórir hlutar Lýðveldisins Kongó eru regnskógar. Langflestir íbúar Vestur-Kongó búa í suðvesturhluta landsins. Íbúar tala 62 ólík tungumál. Um helmingur þeirra eru rómversk-kaþólskir og um 40% aðhyllast mótmælendatrú. Efnahagslíf Lýðveldisins Kongó byggist aðallega á olíuútflutningi og timbri. Landið á mikið af auðlindum í jörð (fosfat, gull og aðrir málmar) sem eru að miklu leyti ónýttar.