Forsætisráðherra Danmerkur From Wikipedia, the free encyclopedia
Lars Løkke Rasmussen (fæddur 15. maí 1964 í Vejle) er danskur stjórnmálamaður og núverandi utanríkisráðherra Danmerkur. Hann er jafnframt fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur (á tímabilunum 2009–2011 og 2015–2019) og fyrrum formaður stjórnmálaflokksins Venstre. Hann er núverandi leiðtogi danska stjórnmálaflokksins Moderaterne, Hófsemdarflokksins, sem hann stofnaði árið 2021.
Lars Løkke Rasmussen | |
---|---|
Forsætisráðherra Danmerkur | |
Í embætti 28. júní 2015 – 27. júní 2019 | |
Þjóðhöfðingi | Margrét 2. |
Forveri | Helle Thorning-Schmidt |
Eftirmaður | Mette Frederiksen |
Í embætti 5. apríl 2009 – 3. október 2011 | |
Þjóðhöfðingi | Margrét 2. |
Forveri | Anders Fogh Rasmussen |
Eftirmaður | Helle Thorning-Schmidt |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. maí 1964 Vejle, Danmörku |
Þjóðerni | Danskur |
Stjórnmálaflokkur | Moderaterne (frá 2021) Venstre (til 2021) |
Maki | Sólrun Jákupsdóttir |
Börn | 3 |
Háskóli | Kaupmannahafnarháskóli |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Á árunum 2001 til 2007 var hann innanríkis- og heilbrigðisráðherra í þremur ríkisstjórnum Anders Fogh Rasmussen og hinn 23. nóvember 2007 tók hann við stöðu fjármálaráðherra, einnig í ríkisstjórn Anders Fogh Rasmussen.
5. apríl 2009 tók Anders Fogh Rasmussen við stöðu aðalritara NATO og tók Lars Løkke Rasmussen þá við embætti forsætisráðherra Danmerkur.
Lars Løkke Rasmussen er lögfræðingur að mennt og hefur verið þingmaður á löggjafarþingi Danmerkur, Folketinget, frá árinu 1994. Þá var hann einnig borgarstjóri í Frederiksberg frá 1998 til 2001.
Hann er ekki skyldur Anders Fogh Rasmussen þótt báðir beri þeir sama ættarnafn. 3. oktober 2011, Helle Thorning-Schmidt tók þá við embætti forsætisráðherra. Eftir sigur kosningabandalags hægri- og miðflokka í júní 2015 varð hann aftur forsætisráðherra. Hann gegndi embættinu þar til danska hægriblokkin bað ósigur í þingkosningum árið 2019. Þann 31. ágúst eftir þingkosningarnar lýsti Løkke því yfir að hann hygðist segja af sér sem formaður Venstre vegna eigin óánægju með störf flokksins.[1]
Løkke sagði sig úr Venstre í byrjun ársins 2021 vegna innanflokksdeilna en sat áfram sem óháður þingmaður á danska þjóðþinginu.[2] Ágreiningur Løkke við Venstre snerist meðal annars um tillögur hans um að endurhugsa dönsk stjórnmál til að gera út af við blokkaskiptinguna á danska þinginu og opna þess í stað á mögulegt samstarf yfir miðju.[3] Løkke tilkynnti í apríl 2021 að hann hygðist stofna nýjan stjórnmálaflokk, Moderaterne.[4]
Eftir þingkosningar í Danmörku í nóvember 2022 leiddi Løkke hinn nýja flokk sinn í stjórnarsamstarf ásamt Venstre og Jafnaðarmönnum. Løkke varð utanríkisráðherra í nýju stjórninni.[5]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.