Giorgia Meloni
Ítölsk stjórnmálakona / From Wikipedia, the free encyclopedia
Giorgia Meloni (f. 15. janúar 1977) er ítölsk blaða- og stjórnmálakona sem er núverandi forsætisráðherra Ítalíu og leiðtogi stjórnmálaflokksins Bræðra Ítalíu. Flokkurinn er hægrisinnaður þjóðernisflokkur sem var myndaður upp úr Ítölsku samfélagshreyfingunni, nýfasistaflokki sem var upphaflega stofnaður af gömlum meðlimum Fasistaflokksins.
Giorgia Meloni | |
---|---|
Forsætisráðherra Ítalíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 22. október 2022 | |
Forseti | Sergio Mattarella |
Forveri | Mario Draghi |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 15. janúar 1977 (1977-01-15) (47 ára) Róm, Ítalíu |
Stjórnmálaflokkur | Bræður Ítalíu |
Maki | Andrea Giambruno |
Börn | 1 |
Bústaður | Palazzo Chigi, Róm |
Undirskrift |
Meloni var ráðherra ungmennamálefna í fjórðu ríkisstjórn Silvio Berlusconi frá 2008 til 2011. Hún hefur verið leiðtogi Bræðra Ítalíu frá árinu 2014 og hefur jafnframt verið formaður Evrópuflokksins Evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna frá árinu 2020.
Flokkur Meloni varð stærsti flokkurinn á ítalska þinginu í þingkosningum Ítalíu árið 2022. Meloni tók við embætti forsætisráðherra þann 22. október sama ár, fyrst kvenna.