Bresku Jómfrúaeyjar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Bresku Jómfrúaeyjar eru breskt yfirráðasvæði handan hafsins. Eyjarnar eru um fimmtíu talsins og eru nyrst í Litlu-Antillaeyjaklasanum. Þær eru hluti af Jómfrúaeyjaklasanum ásamt Bandarísku Jómfrúaeyjum og Spænsku Jómfrúaeyjum. Stærsta eyjan er Tortóla þar sem höfuðstaðurinn Road Town er.
Virgin Islands | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Vigilate (latína) Verið árvökur | |
Þjóðsöngur: God Save the King | |
Höfuðborg | Road Town |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Þingbundin konungsstjórn |
Konungur | Karl 3. |
Landstjóri | John Rankin |
Forsætisráðherra | Natalio Wheatley |
Breskt yfirráðasvæði | |
• Heimastjórn | 1967 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
216. sæti 153 km² 1,6 |
Mannfjöldi • Samtals (2012) • Þéttleiki byggðar |
212. sæti 27.800 260/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2012 |
• Samtals | 0,8534 millj. dala (*. sæti) |
• Á mann | 43.366 dalir (*. sæti) |
Gjaldmiðill | Bandaríkjadalur |
Tímabelti | UTC-4 |
Þjóðarlén | .vg |
Landsnúmer | +1-284 |
Opinbert heiti Bresku Jómfrúaeyja er einfaldlega Jómfrúaeyjar (Virgin Islands) og er það nafn notað á opinber gögn.
Stærstu eyjarnar eru Tortóla, Virgin Gorda, Anegada og Jost Van Dyke, en auk þeirra tilheyra Bresku Jómfrúaeyjum um fimmtíu smáeyjar og rif. Fimmtán af eyjunum eru byggðar. Nokkrar eyjanna eru í einkaeigu, svo sem Necker-eyja sem er í eigu breska auðkýfingsins Richards Bransons. Um 23 þúsund af tæplega 28 þúsund íbúum búa á Tortólu. Eyjarnar fengu heimastjórn árið 1967 og íbúar hafa haft breskan ríkisborgararétt frá 2002, en eyjarnar eru þó ekki hluti af Evrópusambandinu. Helstu undirstöður efnahagslífs eyjanna eru fjármálaþjónusta og ferðaþjónusta. Yfir helmingur tekna ríkisstjórnar eyjanna kemur til vegna skráningar aflandsfyrirtækja.