![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/62/2017_Iceland_parliamentary_election_results_map_ISL.svg/langis-640px-2017_Iceland_parliamentary_election_results_map_ISL.svg.png&w=640&q=50)
Alþingiskosningar 2017
Íslensk stjórnmál / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþingiskosningar voru boðaðar haustið 2017 eftir að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar klofnaði þann 15. september í kjölfar hneykslismála vegna uppreistar æru kynferðisafbrotamanna.[1] Björt framtíð ákvað að yfirgefa stjórnarsamstarfið, í yfirlýsingu var ástæðan sögð „alvarlegur trúnaðarbrestur innan ríkisstjórnarinnar“.[2] Ríkisstjórnin hafði aðeins setið í um ár, eða frá Alþingiskosningum 2016.
Staðreyndir strax Flokkur, Formaður ...
![]() | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
63 sæti á Alþingi 32 sæti þarf fyrir meirihluta | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Kjörsókn: 201.781 (81.2% ![]() | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hér eru skráðir þeir flokkar sem náðu manni á þing.
|
Loka
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7c/Althingiskosningar_2017_utankjorfunda.jpg/640px-Althingiskosningar_2017_utankjorfunda.jpg)
Kosningar voru haldnar þann 28. október.[3] Þetta voru 23. kosningar til Alþingis frá lýðveldisstofnun. Að loknum kosningum mynduðu Vinstri hreyfingin grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ríkisstjórn undir forystu Katrínar Jakobsdóttur.