Píratar
íslenskur stjórnmálaflokkur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Píratar eru íslenskur stjórnmálaflokkur sem hefur boðið fram í Alþingiskosningum frá árinu 2013. Píratar leggja áherslu á beint lýðræði, gagnsæi og baráttu gegn spillingu, loftslagsmál, friðhelgi einkalífs, gjaldfrjálsa grunnþjónustu og frjálsa miðlun þekkingar. Borgararéttindi eru Pírötum jafnframt hugleikin; eins og tjáningarfrelsið, óskert aðgengi að heilbrigðisþjónustu og menntun, kosningarétturinn, rétturinn til að mótmæla og sjálfsákvörðunarréttur fólks. Píratar stefna að varðveislu og útvíkkun slíkra réttindi og þeir telja að borgararéttindi tilheyri einstaklingum, réttur hvers og eins sé jafn sterkur.[2]
Píratar | |
---|---|
Fylgi | 0,9%¹ |
Framkvæmdastjóri | Kristín Ólafsdóttir |
Stofnár | 2012 |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Borgararéttindi, friðhelgi einkalífsins, gagnsæi, upplýsinga- og tjáningarfrelsi, beint lýðræði, sjálfsákvörðunarréttur[1] |
Einkennislitur | fjólublár |
Sæti á Alþingi | |
Sæti í sveitarstjórnum | |
Listabókstafur | P |
Vefsíða | www.piratar.is |
¹Fylgi í síðustu Alþingiskosningum |
Stefnumál Pírata eru mótuð á sérstökum umræðu- og kosningavef flokksins, þar sem öllu félagsfólki býðst að móta og greiða atkvæði um stefnurnar. Á vefnum er jafnframt valið á framboðslista Pírata, bæði fyrir alþingis- og sveitarstjórnarkosningar.