Stjórnmálaflokkur
Samtök sem boða ákveðna stefnu í stjórnmálum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Stjórnmálaflokkar eru samtök manna um að standa fyrir ákveðnum hugmyndum í stjórnmálum með það að augnamiði að ná völdum. Menn skiptast í flokka eftir stefnum, hagsmunum og sameiginlegum skoðunum og hugsjónum. Í lýðræðislegum ríkjum bjóða stjórnmálaflokkar sig fram í listakosningum. Í sumum einræðisríkjum eru einnig stjórnmálaflokkar, svo sem Kommúnistaflokkurinn í Sovétríkjunum. Það fer eftir sögu, kosningakerfi og stjórnarfari viðkomandi lands.