![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8c/%25C3%259Eorger%25C3%25B0ur_Katr%25C3%25ADn_Gunnarsd%25C3%25B3ttir_Vi%25C3%25B0reisn.jpg/640px-%25C3%259Eorger%25C3%25B0ur_Katr%25C3%25ADn_Gunnarsd%25C3%25B3ttir_Vi%25C3%25B0reisn.jpg&w=640&q=50)
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (f. 4. október 1965) er fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegisráðherra, fyrrum forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs Samtaka atvinnulífsins, og fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins og menntamálaráðherra. Hún er nú á þingi fyrir Viðreisn (síðan 2016) og hefur verið formaður flokksins frá árinu 2017. Þorgerður Katrín er starfsaldursforseti Alþingis og stýrði fundum þess að loknum alþingiskosningunum 2021, þar sem deilt var um afgreiðslu kjörbréfa að lokinni umdeildri talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (ÞKG) | |
![]() Þorgerður Katrín árið 2021 | |
Fæðingardagur: | 4. október 1965 (1965-10-04) (58 ára) |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Þingsetutímabil | |
1999-2003 | í Reykn. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2003-2009 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. ✽ |
2009-2013 | í Suðvest. fyrir Sjálfstfl. |
2016-2017 | í Suðvest. fyrir Viðr. ✽ |
2017- | í Suðvest. fyrir Viðr. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1999-2003 | Formaður allsherjarnefndar |
2003 | Formaður Íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA |
2003-2009 | Menntamálaráðherra |
2005-2010 | Varaformaður Sjálfstæðisflokksins |
2017 | Formaður Viðreisnar |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Þorgerður er dóttir Gunnars H. Eyjólfssonar, leikara, og Katrínar Arason deildarstjóra hjá Flugmálastjórn. Þorgerður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1985. Þar var hún Ármaður skólafélagsins á lokaári sínu, önnur kvenna til að vera kjörin sem ármaður í MS. Hún lauk lögfræðinámi frá Háskóla Íslands 1993. Þorgerður starfaði sem lögmaður í eitt ár og sem yfirmaður samfélags- og dægurmáladeildar Ríkisútvarpsins 1997-1999.
Þorgerður sat á Alþingi á árunum 1999-2013, fyrst fyrir Reykjaneskjördæmi en fyrir Suðvesturkjördæmi frá 2003. Hún var menntamálaráðherra á árunum 2003-2009 og var varaformaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 2005-2010. Árið 2016 fór hún aftur á þing fyrir Viðreisn og var endurkjörin á þing fyrir sama flokk árið 2017.
Hún er gift Kristjáni Arasyni, viðskiptafræðingi og fyrrum handboltakappa og eiga þau saman þrjú börn.