Þýska
tungumál / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þýska (þýska: Deutsch; framburðurⓘ) er vesturgermanskt tungumál, sem talað er og ritað aðallega í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og Liechtenstein. Þýska er auk þess annað opinbert tungumál í Belgíu og Lúxemborg, og ítalska héraðinu Suður-Týról, og hefur stöðu viðurkenndrar þjóðtungu í Namibíu. Þýska er töluð víða í Evrópu, eins og í franska héraðinu Elsass, tékkneska héraðinu Norður-Bæheimi, pólska héraðinu Efri-Slésíu, og staðbundið í Slóvakíu og Ungverjalandi.
Þýska Deutsch | ||
---|---|---|
Málsvæði | Þýskalandi, Sviss, Austurríki auk 38 annarra landa | |
Heimshluti | Evrópa | |
Fjöldi málhafa | 120 milljónir | |
Sæti | 10 | |
Ætt | Indóevrópskt Germanskt | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Þýskalandi, Liechtenstein, Austurríki, Belgíu, Sviss, Ítalía (í Suður-Týról) og Lúxemborg | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | de | |
ISO 639-2 | ger og deu | |
ISO 639-3 | deu | |
SIL | GER | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Þýska tilheyrir germönskum málum. Germönsk mál flokkast síðan til indó-evrópskrar málaættar og eru fjarskyld málum eins og til dæmis sanskrít. Hún er skyldust öðrum vesturgermönskum málum, eins og afríkönsku, hollensku, ensku, frísneskum málum, lágþýsku, lúxemborgísku, skosku og jiddísku. Hún deilir auk þess orðaforða með norðurgermönskum málum, eins og dönsku, norsku og sænsku. Nútímamálið þýska þróaðist út frá háþýsku, sem aftur hafði þróast frá frumgermönsku á ármiðöldum. Þýska er annað mest talaða germanska málið, á eftir ensku, bæði sem fyrsta mál og annað mál.
Þýska er stærsta móðurmálið innan Evrópusambandsins og er víða kennd sem erlent mál, sérstaklega í Evrópu (þar sem hún er í þriðja sæti á eftir ensku og frönsku) og Bandaríkjunum. Til eru þrjár opinberar útgáfur þýsku í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, en stöðluð þýska er stundum kölluð háþýska. Til er mikill fjöldi þýskra mállýska. Frá 2004 hafa þjóðhöfðingjar þýskumælandi landa fundað árlega. Þýska réttritunarráðið er alþjóðlegt ráð sem gefur út reglur um þýska stafsetningu.