Sænska
Norður-þýska málið talað í Svíþjóð / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sænska (svenska) er norrænt tungumál, sem aðallega er talað í Svíþjóð og nokkrum hlutum Finnlands, aðallega með ströndum Eystrasalts og á Álandseyjum, samanlagt nærri 9,5 milljónir talendur. Sænska, danska og norska eru gagnkvæmt skiljanleg. Stöðluð sænska (ríkissænska) er sameiginleg þjóðtunga sem varð til úr mállýskum Mið-Svíþjóðar á 19. öld og var endanlega formuð í byrjun 20. aldar. Þrátt fyrir að ríkismálið sé allsráðandi í fjölmiðlum og skólum eru enn til sterkar svæðisbundnar mállýskur. Sumar þessar mállýskur eru talsvert frábrugðnar ríkismálinu bæði varðandi málfræði og orðaforða og margar nánast óskiljanlegar fyrir aðra. Nefna má gotlensku, skánsku, elfdælsku, jamsku, bondsku og finnlandssænsku. Allar þessar mállýskur eiga þó í vök að verjast gegn ríkismálinu (og finnsku í Finnlandi).
Sænska Svenska | ||
---|---|---|
Málsvæði | Svíþjóð og Finnlandi | |
Heimshluti | Norður-Evrópa | |
Fjöldi málhafa | 10 milljónir | |
Sæti | 89 | |
Ætt | Indóevrópskt Germönsk | |
Skrifletur | Finnsk-sænska stafrófið | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Svíþjóð | |
Stýrt af | Sænskri málstöð | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | sv | |
ISO 639-2 | swe | |
ISO 639-3 | swe | |
SIL | SWD | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |