![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a1/Thorskafjordur.jpg/640px-Thorskafjordur.jpg&w=640&q=50)
Þorskafjörður
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þorskafjörður er um 16 km langur fjörður í Austur-Barðastrandarsýslu á milli Reykjaness og Skálaness. Líkt og aðrir firðir á þessum slóðum er Þorskafjörður grunnur og stendur innsti hluti hans á leirum þegar fjarar. Inn úr honum ganga tveir stuttir og grunnir firðir, Djúpifjörður og Gufufjörður.
![Séð niður í Þorskafjörð af Þorskafjarðarheiði.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a1/Thorskafjordur.jpg/640px-Thorskafjordur.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Á Skógum í Þorskafirði fæddist skáldið Matthías Jochumsson árið 1835.
Upp úr botni Þorskafjarðar liggur þjóðvegur um Þorskafjarðarheiði yfir í Ísafjarðardjúp. Var hann lagður á árunum 1940-1946 og þjónaði sem aðalleiðin á milli Reykjavíkur og Djúps fram til 1987, þegar vegur um Steingrímsfjarðarheiði var opnaður.
Árið 2021 var fjörðurinn brúaður og var brúin opnuð haustið 2023 fyrir áætlun. Verkinu var áætlað lokið 2024. Verkið var hluti af færslu Vestfjarðarvegar í Gufudalssveit.[1]