![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Austur-Bar%25C3%25B0astrandars%25C3%25BDsla_Loc.svg/langis-640px-Austur-Bar%25C3%25B0astrandars%25C3%25BDsla_Loc.svg.png&w=640&q=50)
Austur-Barðastrandarsýsla
From Wikipedia, the free encyclopedia
Austur-Barðastrandarsýsla var ein af sýslum Íslands. Sýslur eru ekki lengur stjórnsýslueiningar á Íslandi, en nafnið er enn notað til að vísa til svæðisins.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Austur-Bar%C3%B0astrandars%C3%BDsla_Loc.svg/640px-Austur-Bar%C3%B0astrandars%C3%BDsla_Loc.svg.png)
Austur-Barðastrandarsýsla er á Vestfjörðum og er þar eitt sveitarfélag, Reykhólahreppur. Landamörk sýslunnar að norðan eru vatnaskil á hálendinu um suðurjaðar Glámu og norðurenda Reiphólsfjalla, norður um miðja Þoskafjarðarheiði. Hún nær frá botni Gilsfjarðar og vestur í Kjálkafjörð. Flatarmál Austur-Barðastrandarsýslu er 1.090 km².
Miðstöð sýslunnar er að Reykhólum. Þar er starfrækt þörungaverksmiðja, auk þess sem þar er m.a. starfræktur grunnskóli, brunavarnir, dvalarheimili aldraðra, skrifstofa sveitarfélagsins og útibú frá sýslumanninum á Patreksfirði. Annað minna þéttbýli er að Króksfjarðarnesi, en þar eru verslun, sláturhús og banki. Aðalatvinnuvegur í dreifbýli er landbúnaður auk ferðaþjónustu.