Öræfajökull
Mountain From Wikipedia, the free encyclopedia
Mountain From Wikipedia, the free encyclopedia
Öræfajökull er eldkeila á Suðausturlandi (Austur-Skaftafellssýslu).[1] Yfir fjallinu er jökulhetta þ.e. Öræfajökullinn sjálfur, sem er jafnframt syðsti hluti Vatnajökuls. Hann fyllir stóra öskju efst á fjallinu. Margir skriðjöklar skríða út frá jökulhettunni niður fjallshlíðarnar og um dali við fjallsræturnar. Meðal þeirra eru Svínafellsjökull, Virkisjökull, Kotárjökull, Kvíárjökull og Hrútárjökull. Á norðurhlið fjallsins er Hvannadalshnúkur, hæsti tindur Íslands, 2.110 m. Öræfajökull (jökullinn sjálfur) er allur innan Vatnajökulsþjóðgarðs og fjallið að miklu leyti líka.
Öræfajökull er megineldstöð og hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma; fyrst 1362 þegar Litlahérað lagðist í eyði, og síðan minna gosi 1727. Mikið tjón varð í báðum gosunum og þeim fylgdi öskufall og jökulhlaup. Mannfall varð í báðum gosum.
Auk þess að vera megineldstöð er Öræfajökull sitt eigið eldstöðvarkerfi. Hann er einn af 41 eldstöðvakerfum á Íslandi og í millibergröð.[2]
Í nóvember árið 2017 urðu jarðskjálftar undir jöklinum og mældust uppleyst efni í Kvíá sem kemur undan honum og bentu til þess að nýlegt jarðhitasvæði væri undir honum. Askja jökulsins hafði sigið meira en 20 metra. Í febrúar 2018 varð skjálfti af stærð 3,6 undir öskjunni.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.