From Wikipedia, the free encyclopedia
Mýraflóki (fræðiheiti: Rhododendron tomentosum (áður Ledum palustre), er ilmandi runni í undirdeildinni Ledum í lyngrósaættkvísl (Rhododendron) í lyngætt.
Mýraflóki | ||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
R. tomentosum í blóma | ||||||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||||
Rhododendron tomentosum Harmaja | ||||||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||||||
Ledum palustre L. |
Mýraflóki er lágvaxinn runni sem verður að 50 sm hár (sjaldan að 120 sm) með sígrænum blöðum 12–50 mm löng og 2–12 mm breið. Blómin eru smá, með 5 krónublöð, og eru mörg í hálfsveipum sem eru nokkrir saman endastæðum klösum 3–5 sm í þvermál. Þau eru með sterka lykt sem dregur að býflugur og önnur frjóvgandi skordýr.
Í Norður-Ameríku vex hann í norðurhluta Grænlands, Kanada, og Alaska, í Evrópu í norður og miðhlutanum, og í Asíu suður til norður Kína, Kóreu og Japan. Hann vex á mýrlendi, runnasvæðum og mosa og fléttu túndru.
Allir hlutar plöntunnar innihalda eitraða terpena sem virka á miðtaugakerfið. Fyrstu einkenni ofskömmtunar er svimi og truflanir í hreyfigetu, sem verða svo krampi, velgja, og meðvitunarleysi. Lyktin ein og sér getur valdið höfuðverk hjá sumu fólki.[1]
Ekki má rugla þessari tegund við hina skyldu og líku tegund heiðaflóka (Rhododendron groenlandicum), sem finnst aðallega á Labrador og Grænlandi, en einnig víðar í norðurhluta Norður-Ameríku), sem er heppilegri til nytja vegna lægri efnainnihalds.
Mýraflóki er notaður í jurtalækningum til að gera svonefnt Labrador-te. Sumir telja mýraflóka vera heppilegan til að smyrja á stungu- og bitsár, t.d. vegna skordýra. Hinsvegar hafa engar áreiðanlegar rannsóknir verið gerðar á því enn.
Mýraflóki var notaður í Gruit(en) í bjórgerð á miðöldum. Vegna sterkrar lyktarinnar hefur hann áður verið notaður sem vörn gegn fatamöl, einnig moskítóflugum og skordýrum almennt í Skandinavíu.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.