From Wikipedia, the free encyclopedia
Jimmy Rogers (fæddur s.1950) var bandarískur körfuknattleiksmaður sem gerði garðinn frægan með Ármanni tímabilið 1975-1976. Hann og Curtis Carter, sem samdi við KR sama haust, voru fyrstu erlendu atvinnumennirnir í körfubolta hér á landi. Koma þeirra hleypti nýju lífi í körfuboltann á Íslandi en tilþrif þeirra og litríkir persónuleikar juku áhugan og umfjöllun á körfuboltans og voru þeir tíðir gestir á blaðsíðum dagblaða landsins.[1][2][3]
Jimmy Rogers | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fæðingardagur | s.1950 | |
Fæðingarstaður | Bandaríkin | |
Hæð | 1.98 m | |
Þyngd | 98 kg | |
Leikstaða | Framherji | |
Háskólaferill | ||
Texas Southern | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | |
1975–1976 | Ármann | |
1 Meistaraflokksferill |
Rogers fæddist í Thompson í Texas og ólst upp í Houston með sjö systkynum. Hann lék körfubolta með Texas Southern University ásamt liðum í Houston, Argentínu og Mexíkó áður en hann kom til Íslands.[4][5]
Rogers gekk til liðs við Ármann í september 1975 og varð fyrsti erlendi atvinnumaðurinn í körfubolta hér á landi.[6] Fyrst um sinn skrifaði hann undir 3 mánaða samning sem gilti frá 15. september til 15. desember með möguleika á að Ármann framlengdi hann til loka tímabilsins. Megin hugsun Ármenninga var að styrkja liðið vegna komandi leikja þeira við finnska liðið Honka Playboys í Evrópukeppni bikarhafa.[5]
Fyrstu leikir hans hér á landi voru með Ármanni í hinu árlega Reykjavíkurmóti í körfuknattleik. Ármann endaði í öðru sæti á mótinu, á eftir ríkjandi Íslandsmeisturum ÍR[7], og Rogers leiddi mótið í stigaskorun með 113 stig í fimm leikjum, eða 22,6 stig að meðaltali í leik.[8]
Þann 30. október skoraði Rogers 24 stig fyrir Ármann í 65-88 tapi þeirra í fyrri leik sínum á móti Honka Playboys í Evrópukeppninni en Ármenningar réðu illa við Ronnie Canon, bandaríkjamanninn í liði Honka, sem skoraði 33 stig.[9][10]
Fyrsti leikurinn á milli Rogers og Carter var 16. desember og var beðið með mikilli eftirvæntingu.[11] Leikurinn olli ekki vonbrigðum, var æsispennandi og endaði 85-81 Ármanni í vil. En þegar einungis 54 sekúndur voru eftir af leiknum, og staðan jöfn 81-81, þá lenti Carter saman við Rogers og sló hann hnefahöggi í gólfið.[12][13][14] Ljósmyndari Dagblaðsins náði mynd af högginu og endaði það á forsíðu blaðsins daginn eftir[15] ásamt því sem fyrirsögnin á frétt Þjóðviljas hljóðaði "Jimmy vann einvígið — Trukkur hnefaleikana".[16] Báðir leikmennirnir fengu eins leikja bann fyrir slagsmálin frá aganefnd KKÍ og var hótað með 6 leikja banni ef þeir fengju aðra brottvísun. Dómurinn var talsvert gagnrýndur, bæði þar sem hann þótti of stuttur auk þess að hótunin um 6 leikja bann fyrir annað brot, sem myndi líklegast enda feril þeirra hér á landi, átti bara við um þá en ekki aðra leikmenn. Töldu menn hætta á að andstæðingar þeirra myndu reyna að æsa þá upp í tilraun til að fá dómarana til að vísa þeim af velli.[17]
Í lok tímabilsins var það Rogers sem stóð á toppnum en Ármann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa sigrað KR í síðasta leik tímabilsins á meðan KR endaði í þriðja sæti, á eftir ÍR í öðru sæti. Rogers endaði í öðru sæti yfir stigahæstu menn deildarinnar, með 365, á eftir Carter sem setti nýtt deildarmet með 451 stigi.[18]
Í bikarkeppninni lagði Ármann Njarðvík að velli, 98-89, og varð Rogers stigahæstur allra á vellinum með 32 stig.[19]
Rogers kom aftur til Ármanns tímabilið eftir.[20] Hann varð aftur stigahæstur á Reykjavíkurmótinu, með 135 stig,[21] en Ármann endaði aftur í öðru sæti, í þetta sinn á eftir KR.[22]
Hann fékk leyfi til að fara tímabundið frá Ármanni í desember, með liðið ósigrað í efsta sæti[23], til að sinna persónulegum erindum í Bandaríkjunum.[24] Eftir miklar vangaveltur um hvort hann kæmi aftur, þá tilkynntu Ármenningar í janúar 1976 að Rogers kæmi ekki aftur til félagsins.[25]
Tímabil | Lið | Leikir | Stig | Stig/leik |
---|---|---|---|---|
1975-76 | Ármann | 13 | 365 | 28,1 |
1976-77 | Ármann | 5 | 101 | 20,5 |
Samtals | 18 | 466 | 25,9 | |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.