From Wikipedia, the free encyclopedia
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla 2022 eða HM 2022 fór fram í Katar dagana 20. nóvember til 18. desember. Þetta var heimsmeistarakeppni númer 22 og sú fyrsta sem haldin var í Miðausturlöndum og aðeins önnur sem fram fór í Asíu. Flestar fyrri keppnir hafa farið fram að sumarlagi en vegna þrúgandi hita á Arabíuskaga á þeim árstíma var keppnin haldin að vetrarlagi. Valið á gestgjöfunum var harðlega gagnrýnt af ýmsum mannréttindasamtökum.
Ákvörðunin um val á gestgjöfum á HM 2018 og HM 2022 fór fram samtímis á árunum 2009 og 2010. Í aðdraganda valsins ákvað FIFA að hverfa frá fyrri stefnu um að láta gestgjafahlutverkið ganga frá einni heimsálfu til annarrar. Þess í stað var tekin sú ákvörðun að mótið skyldi ekki haldið í sömu álfu tvær keppnir í röð.
Alls stóðu þrettán þjóðir að samtals ellefu boðum. Tvær þeirra, Mexíkó og Indónesía drógu sig þó til baka áður en á hólminn var komið. Eftir stóðu England, Rússland, Ástralía, Bandaríkin, Katar, Suður-Kórea, Japan og sameiginleg boð Spánar og Portúgals annars vegar en Hollands og Belgíu hins vegar. Meðan á umsóknarferlinu stóð féllu öll löndin utan Evrópu frá því að falast eftir keppninni 2018. Því varð ljóst að umsóknirnar fjórar frá Evrópu myndu bítast sín á milli um það mót en hinar fimm um keppnina 2022.
Rússar unnu afgerandi sigur í kosningunni um keppnina 2018. Fengu níu atkvæði af 22 í fyrstu umferð og hreinan meirihluta, þrettán atkvæði í næstu umferð. Öllu óvæntara varð hins vegar að Katar hlaut ellefu atkvæði í fyrstu umferð í kosningunni um 2022. Suður-Kórea kom næst með fjögur atkvæði, þá Bandaríkin og Japan með þrjú hvort og Ástralir ráku lestina með aðeins eitt atkvæði. Í næstu umferð var Ástralía felld úr keppni. Katar fór úr ellefu atkvæðum í tíu. Bandaríkin og Japan með fimm atkvæði, en Japan féll úr leik með aðeins tvö atkvæði. Enn var gengið til atkvæða og í þriðju umferð fékk Katar ellefu atkvæði á ný á meðan Bandaríkin hlutu sex og Suður-Kórea fimm. Því þurfti að grípa til hreinnar úrslitakosningar þar sem Katar fékk fjórtán atkvæði gegn tíu atkvæðum Bandaríkjamanna.
Þessi niðurstaða kom mörgum í opna skjöldu þar sem umsókn Katar var af mörgum talin langsótt í ljósi þess að landið er fámennt og ekki hátt skrifað í heimsknattspyrnunni. Ljóst var að alla leikvanga þyrfti að reisa frá grunni og mikil óvissa var um hvort unnt yrði að halda mótið á hefðbundnum leiktíma vegna veðurfars, þótt skipuleggjendur segðust bjartsýnir á að leysa mætti það með tæknilegum útfærslum. Þá gagnrýndu ýmis verkalýðs- og mannréttindasamtök staðarvalið harðlega og bentu á illa meðferð á farandverkafólki í landinu. Reiðibylgjan í kjölfar valsins átti sinn þátt í falli Sepp Blatter sem forseta FIFA, þótt sjálfur hefði hann í raun ekki verið sérstakur stuðningsmaður þess að mótið færi fram í Katar. Ítrekuðum kröfum um að FIFA endurskoðaði ákvörðun sína var ekki sinnt og ákall um sniðgöngu mótsins skilaði litlum árangri.
32 þjóðir mættu til leiks frá sex heimsálfum.
Átta leikvangar í fimm borgum og bæjum voru notaðir á mótinu.
Lusail | Al Khor | Doha | |
---|---|---|---|
Lusail Iconic leikvangurinn | Al Bayt leikvangurinn | Leikvangur 974 | Al Thumama leikvangurinn |
áh.: 80.000 |
áh.: 60.000 | áh.: 40.000 | áh.: 40.000 |
Al Rayyan | Al Wakrah | ||
Education City leikvangurinn | Ahmed bin Ali leikvangurinn | Khalifa-alþjóðaleikvangurinn | Al Janoub-leikvangurinn |
áh.: 45.350 | áh.: 44.740 | áh.: 40.000 | áh.: 40.000 |
Keppt var í átta riðlum, hverjum með fjórum keppnisliðum. Tvö efstu liðin fóru í 16-liða úrslit.
Nokkur óvissa var um styrkleika gestgjafaliðsins, sem varði mörgum mánuðum saman í æfingabúðum fyrir keppnina. Lið Katar olli vonbrigðum og varð fyrsta heimaliðið til að tapa öllum leikjum sínum. Hollendingar enduðu á toppnum með sjö stig, en máttu þó prísa sig sæli með jafntefli á móti Ekvador í miðjuleiknum. Senegal og Ekvador mættust svo í fjörugum úrslitaleik um annað sætið þar sem afrísku meistararnir reyndust sterkari.
20. nóvember | |||
Katar | 0-2 | Ekvador | Al Bayt leikvangurinn, Al Khor Áhorfendur: 67.372 Dómari: Daniele Orsato, Ítalíu |
Valencia 16, 31 |
21. nóvember | |||
Senegal | 0-2 | Holland | Al Thumama leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 41.721 Dómari: Wilton Sampaio, Brasilíu |
Gakpo 84, Klaassen 90+9 |
25. nóvember | |||
Katar | 1-3 | Senegal | Al Thumama leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 41.797 Dómari: Antonio Mateu Lahoz, Spáni |
Muntari 78 | Dia 41, Diédhiou 48, Dieng 84 |
25. nóvember | |||
Holland | 1-1 | Ekvador | Khalifa alþjóðaleikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.833 Dómari: Mustapha Ghorbal, Alsír |
Gakpo 6 | Valencia 49 |
29. nóvember | |||
Holland | 2-0 | Katar | Al Bayt leikvangurinn, Al Khor Áhorfendur: 66.784 Dómari: Bakary Gassama, Frakklandi |
Gakpo 26, F. de Jong 49 |
25. nóvember | |||
Ekvador | 1-2 | Senegal | Khalifa alþjóðaleikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.569 Dómari: Clément Turpin, Gambíu |
Caicedo 67 | Sarr 44, Koulibaly 70 |
England fór sannfærandi í gegnum riðilinn með níu mörk skoruð, þrátt fyrir markalaust jafntefli gegn Bandaríkjunum í miðjuleiknum. Lið Wales á sínu fyrsta heimsmeistaramóti frá árinu 1958 ollu stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum og fengu m.a. á sig tvö mörk í uppbótartíma gegn Írönum. Íran hefði dugað jafntefli gegn Bandaríkjamönnum til að komast í næstu umferð en máttu sætta sig við 1:0 tap þrátt fyrir harða hríð að bandaríska markinu í lokin.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | England | 3 | 2 | 1 | 0 | 0 | 2 | +7 | 7 | |
2 | Bandaríkin | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 | 1 | +1 | 5 | |
3 | Íran | 3 | 1 | 0 | 2 | 4 | 7 | -3 | 3 | |
4 | Wales | 3 | 0 | 1 | 2 | 1 | 6 | -5 | 1 | |
21. nóvember | |||
England | 6-2 | Íran | Khalifa alþjóðaleikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 45.334 Dómari: Raphael Claus, Brasilíu |
Bellingham 35, Saka 43, 62, Sterling 45+1, Rashford 71, Grealish 90 | Taremi 65, 90+13 |
21. nóvember | |||
Wales | 1-1 | Bandaríkin | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 43.418 Dómari: Abdulrahman Al-Jassim, Katar |
Bale 82 | Weah 36 |
25. nóvember | |||
Wales | 0-2 | Íran | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 40.875 Dómari: Mario Escobar, Gvatemala |
Cheshmi 90+8, Rezaeian 90+11 |
25. nóvember | |||
England | 0-0 | Bandaríkin | Al Bayt leikvangurinn, Al Khor Áhorfendur: 68.463 Dómari: Jesús Valenzuela, Venesúela |
29. nóvember | |||
Wales | 0-3 | England | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.297 Dómari: Slavko Vinčić, Slóveníu |
Rashford 50, 68, Foden 51 |
29. nóvember | |||
Íran | 0-1 | Bandaríkin | Al Thumama leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 42.127 Dómari: Antonio Mateu Lahoz, Spáni |
Pulisic 38 |
Sigur Sádi-Araba á Argentínu í fyrsta leik riðilsins var af mörgum talinn einhver sá óvæntasti í sögu HM. Þessi slæma byrjun sló Argentínumenn þó ekki út af laginu og unnu þeir báða leikina sem eftir voru og nældu í toppsætið. Pólverjar skriðu áfram þrátt fyrir 2:0 tap í lokaleiknum vegna hagstæðra úrslita í viðureign Maxíkó og Sádi-Arabíu. Mexíkó sótti stíft en hefði þurft að skora eitt mark til viðbótar til að komast áfram á markatölu.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Argentína | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 | 2 | +3 | 6 | |
2 | Pólland | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 0 | 4 | |
3 | Mexíkó | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 3 | -1 | 4 | |
4 | Sádi-Arabía | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 5 | -2 | 3 | |
22. nóvember | |||
Argentína | 1-2 | Sádi-Arabía | Lusail Iconic leikvangurinn, Lusail Áhorfendur: 88.012 Dómari: Slavko Vinčić, Slóveníu |
Messi 10 | Al-Shehri 48, Al-Dawsari 53 |
22. nóvember | |||
Mexíkó | 0-0 | Pólland | 974 leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 39.369 Dómari: Chris Beath, Ástralíu |
26. nóvember | |||
Pólland | 2-0 | Sádi-Arabía | Education City leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.259 Dómari: Wilton Sampaio, Brasilíu |
Zieliński 39, Lewandowski 82 |
26. nóvember | |||
Argentína | 2-0 | Mexíkó | Lusail Iconic leikvangurinn, Lusail Áhorfendur: 88.966 Dómari: Daniele Orsato, Ítalíu |
Messi 64, Fernández 87 |
30. nóvember | |||
Pólland | 1-2 | Argentína | 974 leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 44.089 Dómari: Danny Makkelie, Hollandi |
Mac Allister 46, Álvarez 67 |
30. nóvember | |||
Sádi-Arabía | 1-2 | Mexíkó | Lusail Iconic leikvangurinn, Lusail Áhorfendur: 84.985 Dómari: Michael Oliver, Englandi |
Al-Dawsari 90+5 | Martín 47, Chávez 52 |
Búist var við því að baráttan um toppsæti riðilsins stæði milli Frakka og Dana en annað kom á daginn. Danska liðið gerði markalaust jafntefli við Túnis í fyrsta leik og tapaði síðan naumlega fyrir Frökkum, sem voru komnir áfram eftir tvær fyrstu umferðirnar. Ástralir skelltu hins vegar Dönum í lokaumferðinni og komust áfram á kostnað Túnisbúa sem sátu eftir með sárt ennið þrátt fyrir að ná að leggja heimsmeistarana í lokaleiknum.
22. nóvember | |||
Danmörk | 0-0 | Túnis | Education City leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 42.925 Dómari: César Arturo Ramo, Mexíkó |
22. nóvember | |||
Frakkland | 4-1 | Ástralía | Al Janoub leikvangurinn, Al Wakrah Áhorfendur: 40.875 Dómari: Victor Gomes, Suður-Afríku |
Rabiot 27, Giroud 32, 71, Mbappé 68 | Goodwin 9 |
26. nóvember | |||
Túnis | 0-1 | Ástralía | Al Janoub leikvangurinn, Al Wakrah Áhorfendur: 41.823 Dómari: Daniel Siebert, Þýskalandi |
Duke 23 |
26. nóvember | |||
Frakkland | 2-1 | Danmörk | 974 leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 42.860 Dómari: Szymon Marciniak, Póllandi |
Mbappé 61, 86 | A. Christensen 68 |
30. nóvember | |||
Túnis | 1-0 | Frakkland | Education City leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 43.627 Dómari: Matthew Conger, Nýja-Sjálandi |
Khazri 58 |
30. nóvember | |||
Ástralía | 1-0 | Danmörk | Al Janoub leikvangurinn, Al Wakrah Áhorfendur: 41.232 Dómari: Mustapha Ghorbal, Alsír |
Leckie 60 |
Þjóðverjar virtust ætla að vinna vandræðalítinn sigur á Japönum í fyrsta leik en misstu 1:0 forystu niður í 1:2 tap. Sama dag unni Spánverjar einn af stærri sigrum HM-sögunnar þegar þeir flengdu lið Kosta Ríka 7:0. Riðillinn opnaðist upp á gátt á nýjan leik þegar Kosta Ríka lagði Japan og Spánverjar og Þjóðverjar gerðu 1:1 jafntefli. Þjóðverjar unnu lokaleikinn gegn Kosta Ríka en þurftu að treysta á hagstæð úrslit í viðureign Japan og Spánar á sama tíma. Spænska liðið komst yfir en tapaði að lokum með tveimur mörkum gegn einu. Úrslitin tryggðu Japönum toppsætið en ýmsir veittu því athygli að tapið kom sér vel fyrir Spánverja sem eygðu fyrir vikið léttari mótherja í næstu umferðum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Japan | 3 | 2 | 0 | 1 | 4 | 3 | +1 | 6 | |
2 | Spánn | 3 | 1 | 1 | 1 | 9 | 3 | +6 | 4 | |
3 | Þýskaland | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 | 5 | +1 | 4 | |
4 | Kosta Ríka | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 11 | -8 | 3 | |
23. nóvember | |||
Þýskaland | 1-2 | Japan | Khalifa alþjóðaleikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 42.608 Dómari: Iván Barton, El Salvador |
Gündoğan 33 | Dōan 75, Asano 83 |
23. nóvember | |||
Spánn | 7-0 | Kosta Ríka | Al Thumama leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 40.013 Dómari: Mohammed Abdulla Hassan Mohamed, Sameinuðu arabísku furstadæmunum |
Olmo 11, Asensio 21, F. Torres 31, 54, Gavi 74, Soler 90, Morata 90+2 |
27. nóvember | |||
Japan | 0-1 | Kosta Ríka | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 41.479 Dómari: Michael Oliver, Englandi |
Fuller 81 |
27. nóvember | |||
Þýskaland | 1-1 | Spánn | Al Bayt leikvangurinn, Al Khor Áhorfendur: 68.895 Dómari: Danny Makkelie, Hollandi |
Füllkrug 83 | Morata 62 |
1. desember | |||
Japan | 2-1 | Spánn | Khalifa alþjóðaleikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.851 Dómari: Victor Gomes, Suður-Afríku |
Dōan 48, Tanaka 51 | Morata 11 |
1. desember | |||
Kosta Ríka | 2-4 | Þýskaland | Al Bayt leikvangurinn, Al Khor Áhorfendur: 67.054 Dómari: Stéphanie Frappart, Frakklandi |
Tejeda 58, Vargas 70 | Gnabry 10, Havertz 73, 85, Füllkrug 89 |
Belgar mættu til leiks sem næsthæsta liðið á heimlista FIFA og hófu keppni með sigri á Kanadamönnum. Eftir það gekk allt á afturfótunum. Marokkó sigraði Belga 2:0 í annarri umferð og endaði óvænt á toppnum með sjö stig. Belgar þurftu á sigri að halda gegn Króötum í lokaumferðinni en tókst ekki að ná því markmiði og silfurliðið frá 2018 komst í næstu umferð.
23. nóvember | |||
Marokkó | 0-0 | Króatía | Al Bayt leikvangurinn, Al Khor Áhorfendur: 59.407 Dómari: Fernando Rapallini, Argentínu |
23. nóvember | |||
Belgía | 1-0 | Kanada | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 40.432 Dómari: Janny Sikazwe, Sambíu |
Batshuayi 44 |
27. nóvember | |||
Belgía | 0-2 | Marokkó | Al Thumama leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 43.738 Dómari: César Arturo Ramos, Mexíkó |
Saïss 73, Aboukhlal 90+2 |
27. nóvember | |||
Króatía | 4-1 | Kanada | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.374 Dómari: Andrés Matonte, Úrúgvæ |
Kramarić 36, 70, Livaja 44, Majer 90+4 | Davies 2 |
1. desember | |||
Króatía | 0-0 | Belgía | Ahmed bin Ali leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 43.984 Dómari: Anthony Taylor, Englandi |
1. desember | |||
Kanada | 1-2 | Marokkó | Al Thumama leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 43.102 Dómari: Raphael Claus, Brasilíu |
Aguerd 40 (sjálfsm.) | Ziyech 4, En-Nesyri 23 |
Brasilía tryggði sér sætið í næstu umferð með því að vinna Evrópuþjóðirnar í tveimur fyrstu leikjum sínum. Liðinu tókst þó ekki að fara ósigrað í gegnum forkeppnina eftir að Kamerún stal sigrinum með marki í uppbótartíma í lokaleiknum, það var þó ekki nóg fyrir afríska liðið sem lauk keppni með fjögur stig, tveimur minna en Svisslendingar sem unnu æsilegan sigur á Serbum í lokaleik.
24. nóvember | |||
Sviss | 1-0 | Kamerún | Al Janoub leikvangurinn, Al Wakrah Áhorfendur: 39.089 Dómari: Facundo Tello, Argentínu |
Embolo 48 |
24. nóvember | |||
Brasilía | 2-0 | Serbía | Lusail Iconic leikvangurinn, Lusail Áhorfendur: 88.103 Dómari: Alireza Faghani, Íran |
Richarlison 62, 73 |
28. nóvember | |||
Kamerún | 3-3 | Serbía | Al Janoub leikvangurinn, Al Wakrah Áhorfendur: 39.789 Dómari: Mohammed Abdulla Hassan Mohamed, Sameinuðu arabísku furstadæmunum |
Castelletto 29, Aboubakar 63, Choupo-Moting 66 | Pavlović 45+1, Milinković-Savić 45+3, Mitrović 53 |
28. nóvember | |||
Brasilía | 1-0 | Sviss | 974 leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 43.649 Dómari: Iván Barton, El Salvador |
Casemiro 83 |
2. desember | |||
Kamerún | 1-0 | Brasilía | 974 leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 41.378 Dómari: Ismail Elfath, Bandaríkjunum |
Aboubakar 90+2 |
2. desember | |||
Serbía | 2-3 | Sviss | Lusail Iconic leikvangurinn, Lusail Áhorfendur: 85.986 Dómari: Fernando Rapallini, Argentínu |
Mitrović 26, Vlahović 35 | Shaqiri 20, Embolo 44, Freuler 48 |
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Portúgal | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 | 4 | +2 | 6 | |
2 | Suður-Kórea | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 0 | 4 | |
3 | Úrúgvæ | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 0 | 4 | |
4 | Gana | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 | 7 | -2 | 3 | |
24. nóvember | |||
Suður-Kóreska | 0-0 | Úrúgvæ | Education City leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 41.663 Dómari: Clément Turpin, Frakklandi |
24. nóvember | |||
Portúgal | 3-2 | Gana | 974 leikvangurinn, Doha Áhorfendur: 42.662 Dómari: Ismail Elfath, Bandaríkjunum |
Ronaldo 65, Félix 78, Leão 80 | Ayew 73, Bukari 89 |
28. nóvember | |||
Suður-Kóreska | 2-3 | Gana | Education City leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 43.983 Dómari: Anthony Taylor, Englandi |
Cho Gue-sung 58, 61 | Salisu 24, Kudus 34, 68 |
28. nóvember | |||
Portúgal | 2-0 | Úrúgvæ | Lusail Iconic leikvangurinn, Lusail Áhorfendur: 88.668 Dómari: Alireza Faghani, Íran |
Fernandes 54, 90+3 |
2. desember | |||
Suður-Kóreska | 2-1 | Portúgal | Education City leikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.097 Dómari: Facundo Tello, Argentínu |
Kim Young-gwon 27, Hwang Hee-chan 90+1 | Horta 5 |
2. desember | |||
Gana | 0-2 | Úrúgvæ | Al Janoub leikvangurinn, Al Wakrah Áhorfendur: 43.443 Dómari: Daniel Siebert, Þýskalandi |
De Arrascaeta 39, 85 |
Sextán lið komust í úrslitakeppnina sem leikin er með útsláttarfyrirkomulagi.
3. desember | |||
Holland | 3-1 | Bandaríkin | Khalifa International Stadium, Al Rayyan Áhorfendur: 44.846 Dómari: Wilton Sampaio, Brasilíu |
Depay 10, Blind 45+1, Dumfries 81 | Wright 76 |
3. desember | |||
Argentína | 2-1 | Ástralía | Ahmad bin Ali Stadium, Al Rayyan Áhorfendur: 45.032 Dómari: Szymon Marciniak, Póllandi |
Messi 35, Álvarez 57 | Fernández 77 (sjálfsm.) |
4. desember | |||
Frakkland | 3-1 | Pólland | Al Thumama Stadium, Doha Áhorfendur: 40.989 Dómari: Jesús Valenzuela, Venesúela |
Giroud 44, Mbappé 74, 90+1 | Lewandowski 90+9 (vítasp.) |
4. desember | |||
England | 3-0 | Senegal | Al Bayt Stadium, Al Khor Áhorfendur: 65.985 Dómari: Iván Barton, El Salvador |
Henderson 38, Kane 45+3, Saka 57 |
5. desember | |||
Japan | 1-1 (1-3 e.vítake.) | Krótaía | Al Janoub Stadium, Al Wakrah Áhorfendur: 42.523 Dómari: Ismail Elfath, Bandaríkjunum |
Maeda 43 | Perišić 55 |
5. desember | |||
Brasilía | 4-1 | Suður-Kórea | Stadium 974, Doha Áhorfendur: 43.847 Dómari: Clément Turpin, Frakklandi |
Vinícius Júnior 7, Neymar 13 (vítasp.), Richarlison 29, Paquetá 36 | Paik Seung-ho 76 |
6. desember | |||
Marokkó | 0-0 (3-0 e.vítake.) | Spánn | Education City Stadium, Al Rayyan Áhorfendur: 44.667 Dómari: Fernando Rapallini, Argentínu |
6. desember | |||
Portúgal | 6-1 | Sviss | Lusail Stadium, Lusail Áhorfendur: 83.720 Dómari: César Arturo Ramos, Mexíkó |
Ramos 17, 51, 67, Pepe 33, Guerreiro 55, Leão 90+2 | Akanji 58 |
9. desember | |||
Króatía | 1-1 (4-2 e.vítake.) | Brasilía | Education City Stadium, Al Rayyan Áhorfendur: 43.893 Dómari: Michael Oliver, Englandi |
Petković 117 | Neymar 105+1 |
9. desember | |||
Holland | 2-2 (3-4 e.vítake.) | Argentína | Lusail Stadium, Lusail Áhorfendur: 88.235 Dómari: Antonio Mateu Lahoz, Spáni |
Weghorst 83, 90+11 | Molina 35, Messi 73 (vítasp.) |
10. desember | |||
Marokkó | 1-0 | Portúgal | Al Thumama Stadium, Doha Áhorfendur: 44.198 Dómari: Facundo Tello, Argentínu |
En-Nesyri 42 |
10. desember | |||
England | 1-2 | Frakkland | Al Bayt Stadium, Al Khor Áhorfendur: 68.895 Dómari: Wilton Sampaio, Brasilíu |
Kane 54 (vítasp.) | Tchouaméni 17, Giroud 78 |
13. desember | |||
Argentína | 3-0 | Króatía | Lusail Stadium, Lusail Áhorfendur: 88.966 Dómari: Daniele Orsato, Ítalíu |
Messi 34 (vítasp.), Álvarez 39, 69 |
14. desember | |||
Frakkland | 2-0 | Marokkó | Al Bayt Stadium, Al Khor Áhorfendur: 68.294 Dómari: César Arturo Ramos, Mexíkó |
T. Hernandez 5, Kolo Muani 79 |
17. desember | |||
Króatía | 2-1 | Marokkó | Khalifa alþjóðaleikvangurinn, Al Rayyan Áhorfendur: 44.137 Dómari: Abdulrahman Al-Jassim, Katar |
Gvardiol 7, Oršić 42 | Dari 9 |
18. desember | |||
Argentína | 3-3 (4-2 e.vítake.) | Frakkland | Lusail Stadium, Lusail Áhorfendur: 88.966 Dómari: Szymon Marciniak, Póllandi |
Messi 23 (vítasp.), 108, Di María 36 | Mbappé 80 (vítasp.), 81, 118 (vítasp.) |
Sjaldan eða aldrei í sögu heimsmeistarakeppninnar hafa komið upp jafnmörg deiluefni og í tengslum við HM í Katar. Þær hófust nánast um leið og tilkynnt var um valið á gestgjöfunum og héldu áfram meðan á undirbúningstímabilinu stóð. Hluti álitaefnanna tengdist mannréttindamálum í landinu, en einnig mál sem tengdust mótshaldinu sjálfu eða þróun alþjóðamála.
Um leið og staðarval HM 2022 lá fyrir vöknuðu spurningar um hvort unnt yrði að halda mótið á sínum hefðbundna tíma á sumrin. Hitinn í Katar er oft um fimmtíu gráður að sumarlagi og bentu sérfræðingar á að slíkt hlyti að koma niður á gæðum knattspyrnunnar og gæti jafnvel stefnt heilsu leikmanna í hættu. Skipuleggjendur gerðu í fyrstu lítið úr þessum áhyggjum, þar sem fullkominni tækni yrði beitt til þess að loftkæla leikvanganna meðan á keppni stæði. Með tímanum jukust þó efasemdir um að slíkar lausnir yrðu framkvæmanlegar og á árinu 2013 ákvað FIFA að láta kanna kosti þess að halda mótið að vetrarlagi.
Hugmyndir um að halda mótið í janúar og febrúar 2022 voru slegnar út af borðinu vegna árekstra við vetrarólympíuleikana. Niðurstaðan varð því sú að seinka keppninni fram í nóvember og desember. Sú ákvörðun var þó fjarri því umdeild. Ýmsir innan FIFA höfðu efasemdir um að efna til stórmóts svo nærri jólum og stjórnendur stærstu knattspyrnudeilda Evrópu voru ósáttir við að keppt yrði á miðju keppnistímabili þeirra. Þrátt fyrir gagnrýnisraddir var tilkynnt í lok febrúar 2015 að mótið í Katar yrði haldið um vetur. Jafnframt var ákveðið að Afríkukeppnin 2023 yrði haldin í júní en ekki í janúarmánuði eins og vant er, til að lengra yrði á milli stórmóta.
Hæstu áætlanir um kostnað Katar af HM 2022 hljóðuðu upp á 220 milljarða Bandaríkjadala. En það er til samanburðar sextugföld sú fjárhæð sem Suður-Afríka varði til að halda HM 2010. Stærstur hluti fjárhæðarinnar var ætlaður í byggingu leikvanga og samgöngumannvirkja, sem og til að reisa frá grunni borgina Lusail, umhverfis aðalleikvang mótsins. Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna þá gegndarlausu sóun sem mótshald af þessu tagi útheimtir og kallað eftir því að fjármununum væri varið til brýnni verkefna. Stjórnvöld í Katar hafa þó alla tíð haldið því fram að heimsmeistaramótið muni til lengri tíma litið reynast góð fjárfesting vegna landkynningar og til að byggja upp ferðamannaiðnað.
Þegar á árinu 2013 þurfti Katar að ganga til samninga við FIFA um að sætta sig við færri leikvanga en upphaflega var áætlað. Þannig urðu knattspyrnuvellirnir átta talsins en ekki tólf eins og áður var ætlað. Í tengslum við umræðu um fjölda leikvanga var rætt um möguleikann á því að hluti mótsins yrði haldinn í grannríkjum Katar, en að lokum var horfið frá öllum slíkum áformum.
Neysla áfengra drykkja hefur löngum verið stór hluti af upplifun knattspyrnuáhugamanna á stórmótum. Neysla áfengis er óheimil í Katar þar sem sjaríalög eru við lýði. Yfirvöld í landinu tilkynntu þó að undanþágur yrðu veittar fyrir erlenda ferðamenn meðan á mótinu stendur og sérstök stuðningsmannasvæði sett upp þar sem áfengi yrði í boði.
Ekkert stjórnmálasamband er á milli Katar og Ísraels. Vöknuðu því spurningar um hvort ísraelskum knattspyrnumönnum yrði heimilað að koma til landsins. Stjórnendur undirbúningsnefndarinnar lýstu því þegar yfir að Ísraelsmenn fengju að taka þátt ef til þess kæmi. Ekki reyndi þó á slíkar undanþágur þar sem liðinu mistókst að komast í úrslitakeppnina.
Í Katar er samkynhneigð ólögleg og eru ströng viðurlög við slíkum brotum. Baráttusamtök hinseginfólks víða um lönd hafa harðlega gagnrýnt stjórnvöld í Katar fyrir afstöðu sína og lýsti ástralski knattspyrnumaðurinn Josh Cavallo því yfir að hann myndi ekki þora til Katar þótt tækifærið byðist vegna löggjafarinnar, en Cavallo er einn örfárra atvinnuknattspyrnukarla sem komið hafa út úr skápnum. Í kjölfarið lýstu mótstjórar því yfir að Cavallo væri velkominn til landsins. Árið 2020 var einnig staðfest að heimilt yrði að veifa hinseginfánanum, einkennistákni hinseginfólks á meðan á leikjum keppninnar stæði.
Innrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 olli hörðum viðbrögðum alþjóðasamfélagsins. Rússar voru komnir í fjögurra liða umspil um eitt laust sæti á HM í Katar. Þegar í blábyrjun stríðsins lýstu mögulegir mótherjar þeirra í umspilinu því yfir að ekki kæmi til greina að leika við rússneska liðið. Fyrstu viðbrögð FIFA, þann 27. febrúar, voru að tilkynna að Rússum yrði gert að keppa undir merkjum knattspyrnusambands síns en ekki sem fulltrúar Rússlands eða undir þjóðfána sínum og á hlutlausum völlum. Þessi viðbrögð náðu ekki að slá á óánægjuraddir og daginn eftir var tilkynnt að Rússar hefðu verið settir í keppnisbann á öllum mótum FIFA.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.