From Wikipedia, the free encyclopedia
Friðrik 8. af Glücksborg var konungur Danmerkur frá 1906 – 1912. Hann var elstur barna Kristjáns konungs 9. og Lovísu af Hessen-Kassel. Hann kvæntist Lovísu prinsessu af Svíþjóð-Noregi árið 1869. Fljótlega eftir brúðkaupið settust hjónin að í Charlottenlund-höll, þar sem mörg af átta börnunum þeirra fæddust.
| ||||
Friðrik VIII | ||||
Ríkisár | 1906 – 1912 | |||
Kjörorð | Herren er min Hjælper. | |||
Fæddur | 3. júní 1843 | |||
Í Guluhöll, Amalíugötu 18, Kaupmannahöfn | ||||
Dáinn | 14. maí 1912 (68 ára) | |||
Hamborg í Þýskalandi | ||||
Gröf | Hróarskeldudómkirkja | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Kristján 9. | |||
Móðir | Louise af Hessen-Kassel | |||
Drottning | Lovísa af Svíþjóð og Noregi | |||
Börn | Prinsar og prinsessur:
|
Frá unga aldri sýndi Friðrik vísindum, listum og menningu mikinn áhuga. Hann ferðaðist mikið, meðal annars til London, Parísar, Berlínar, Stokkhólms, Færeyja og Íslands. Þar sem hann var krónprins í 43 ár fékk hann nægan tíma til að búa sig undir að verða konungur en hann ríkti aðeins í sex ár. Friðrik var frjálslyndur og var hlynntur því er þingræði var innleitt í Danmörku árið 1901.
Friðriki þótti vænt um Ísland og Íslendingum um hann, meira en vant var um Danakonunga.
Á efri árum fékk konungur hjartasjúkdóm, sem dró hann til dauða þann 14. maí 1912, þar sem hann var einn á ferð í Hamborg. Starfsfólk líkhússins bar ekki kennsl á konung Danmerkur fyrr en daginn eftir. Friðrik hlaut hinsta legstað í Hróarskeldudómkirkju og eftirmaður hans var sonurinn Kristján 10.
Lengi gengu sögusagnir um að konungurinn hefði látist á gleðihúsi. Á móti hefur verið bent á að það sé ótrúlegt, þar sem hann hafi látist aðeins um korteri eftir að hann yfirgaf hótel sitt.[1]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.