Remove ads
From Wikipedia, the free encyclopedia
Enver Hoxha (f. 16. október 1908, d. 11. apríl 1985) var einræðisherra Albaníu og leiðtogi albanska Kommúnistaflokksins í tæpa fjóra áratugi eða allt frá 1944 – 1985 þegar hann lést.
Enver Hoxha | |
---|---|
Forsætisráðherra Albaníu | |
Í embætti 22. október 1944 – 19. júlí 1954 | |
Forseti | Omer Nishani Haxhi Lleshi |
Forveri | Ibrahim Biçakçiu |
Eftirmaður | Mehmet Shehu |
Aðalritari Flokks vinnunnar | |
Í embætti 8. nóvember 1941 – 11. apríl 1985 | |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Ramiz Alia |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. október 1908 Gjirokastër, Tyrkjaveldi (nú Albaníu) |
Látinn | 11. apríl 1985 (76 ára) Tírana, Albaníu |
Stjórnmálaflokkur | Flokkur vinnunnar |
Maki | Nexhmije Xhuglini (g. 1945) |
Börn | Ilir, Sokol, Pranvera |
Háskóli | Háskólinn í Montpellier Fríháskólinn í Brussel |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Hoxha fæddist í borginni Gjirokastër í suðurhluta Albaníu. Þar bjó hann allt þar til hann hóf nám í Háskólanum í Montpellier árið 1930. Á námsárunum í Frakklandi komst Hoxa í tæri við kommúnisma og tók þátt í starfi franskra kommúnista. Hann hreyfst af hugmyndafræðinni.
Hoxha sneri baka til Albaníu árið 1936, þá 28 ára gamall. Við heimkomuna hóf hann störf sem grunnskólakennari.
7. apríl 1939 réðust ítalskir fasistar inn í Albaníu og komu Ítalir á leppstjórn í kjölfarið sem stýrt var af Merlika-Kruja. Seinni heimsstyrjöldin hófst formlega síðar sama ár. Hoxha missti stöðu sína sem kennari þegar hann neitaði að ganga í Fasistaflokk Albaníu.
Albanía var lengi vel eitt fátækasta, einangraðasta og margra mati sérkennilegasta land Evrópu. Hoxha hafði mikið um það að segja. Í Albaníu bjuggu um þrjár milljónir manna og þar voru samt sem áður 750 þúsund sprengjubyrgi. Ef til innrásar kæmi áttu almennir borgarar jafnt sem hermenn að grípa til vopna og vernda landið.
Völd Hoxha voru mikil og var um leið gert mikið úr persónu hans og meintum leiðtogahæfileikum. Árlega voru haldnar afmælishátíðar honum til heiðurs og þá voru gjarnan frumflutt lög sem fjölluðu um hæfileika og kosti Hoxha þar var ekkert dregið undan samanber eftirfarandi textabrot:
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.