Björgvin (að fornu Björgyn) (norska: Bergen, Bjørgvin) er næststærsta borg Noregs, staðsett í Hörðalandsfylki í vestur Noregi. Borgin liggur á milli sjö fjalla og er sagt að þar rigni alla daga ársins. Björgvin hefur verið kaupstaður síðan á dögum Ólafs konungs kyrra (d. 1093), og var oft aðsetur konunga áður fyrr. Borgin er næststærsta borg Noregs með um 289.000 íbúa árið 2022. Á stórborgarsvæðinu býr um hálf milljón.

Staðreyndir strax
Björgvin
Thumb
Skjaldarmerki sveitarfélagsins
Thumb
Staðsetning sveitarfélagsins
Upplýsingar
Fylki Hörðaland
Flatarmál
 – Samtals
224. sæti
465 km²
Mannfjöldi
 – Samtals
 Þéttleiki
2. sæti
288,000
0,62/km²
Bæjarstjóri Marit Warncke
Þéttbýliskjarnar Björgvin
Póstnúmer 5003–5099
Opinber vefsíða
Loka

Lega, landafræði og samfélag

Sveitarfélagið Björgvin þekur 465 ferkílómetra og er á skaganum Bergenshalvøyen við Byfjorden. Átta hverfi eru í borginni: Arna, Bergenhus, Fana, Fyllingsdalen, Laksevåg, Ytrebygda, Årstad, and Åsane.

Umhverfis Björgvin eru sjö fjöll og er hún oft kennd við þau. Lest er upp á Flöyfjellet og er kláfur upp á Ulriken. Hæsta fjallið í sveitarfélaginu er hins vegar Gulfjellet eða 987 metrar.

Thumb
Björgvin á vesturströnd Noregs

Samgöngur

Bergensbanen leiðin milli Björgvinjar og Hönefoss eða Ósló opnaði í byrjun 20. aldar. Léttlestakerfi Björgvinjar var sett á lagginar árið 2010. Fleslandflugvöllurinn er um 18 km frá miðbæ Björgvinjar.

Björgvin er syðsti viðkomustaður ferjunnar Hurtigruten sem fer frá Kirkenes í Norður-Noregi.

Söguágrip

Til er lýsing á Björgvin frá því að Ólafur kyrri fékk heimsókn hóps danskra og norskra krossfara árið 1191 áður en þeir lögðu út á Norðursjó. Lýsing þessi er sú elsta sem til er af borginni:

Bær þessi er frægasti bær þar til lands, prýddur konungs höll og líkneski af hinni heilögu jómfrú. Líkami hinnar heilögu Sunnifu hvílir á upphækkun í dómkirkjunni. Að auki eru klaustur mörg, bæði fyrir munka og nunnur. í bænum býr margt manna og er bærinn auðugur og hefur gnótt allra hluta. Harðfiskur, sem kallast skreið og er svo mikið af þeirri vöru að hvorki er hægt að telja, né meta. Skip og menn koma siglandi frá öllum landshornum, Íslendingar, Grænlendingar, Englendingar, Þjóðverjar, Danir, Svíar, Gotlendingar og margar aðrar þjóðir sem of langt væri upp að telja. Þar eru einnig mikið magn af víni, hunangi, hveiti, góðum klæðum, silfri og öðrum söluvörum og mikil verslun með margvíslega hluti. [1]

Björgvin varð höfuðstaður Noregs snemma á 13. öld. Þá var virkið Bergenhus byggt til að verja höfnina. Þegar Hákon háleggur konungur tók við krúnunni 1299 þá færðist höfuðstaðurinn til Óslóar.

Á 14. öld stofnuðu norður-þýskir kaupmenn (Hansakaupmenn) stöðvar verslunar við Bryggen í höfn Björgvinjar. Aðalútflutningsvaran var þurrkaður þorskur frá Norður-Noregi og hlaut borgin einokunarstöðu á útflutningi fisks frá norðurhluta landsins allt til ársins 1789. Á 15. öld léku sjóræningjar borgina grátt og síðar börðust enskir og hollenskir kaupmenn við borgina. Um 1750 lokuðu Hansakaupmenn skrifstofum sínum.

Björgvin var stærsta borg Noregs til um 1830. Margir brunar hafa eyðilagt stóran hluta borgarinnar í gegnum aldirnar. Árið 1702 brann til að mynda um 90% borgarinnar.

Í seinni heimsstyrjöld voru gerðu bandamenn loftárásir á þýskar stöðvar í borginni. Nokkrar andspyrnuhreyfingar störfuðu gegn hernáminu.

Thumb
Björgvin séð frá Fløyen.
Thumb
Verslunarhús Hansakaupmanna við bryggjuna, Bryggen.

Menning

Íþróttir

SK Brann er knattspyrnulið borgarinnar og hefur unnið norsku efstu deild 7 sinnum. Íshokkíliðið er Bergen IK. Í handbolta er kvennaliðið Tertnes og Fyllingen karlamegin.

Tónlist

Þekktasta tónskáld borgarinnar er Edvard Grieg sem samdi þekkt tónverk. Hús hans, Troldhaug, er nú safn.

Í nútíma er borgin þekkt fyrir sveitir eins og Röyksopp og svartmálmssenu með sveitir eins og Enslaved og Borknagar. Einar Selvik úr þjóðlagasveitinni Wardruna fæddist í borginni sem og Sissel Kyrkjebø, sópransöngkona.

Þekkt fólk frá Björgvin

  • Jón Halldórsson, biskup í Skálholti
  • Ivar Giæver (1929), eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi
  • Alf Nordhus (1919 - 1997), hæstaréttarlögmaður
  • Arne Bendiksen (1926), tónlistarmaður
  • Ole Bull (1810 - 1880), tónsmiður og fiðluleikari
  • Jan Eggum (1951), tónlistarmaður
  • Dorothe Engelbretsdotter (1634 - 1713), rithöfundur
  • Gabriel Finne (1866 - 1899), rithöfundur
  • Tryggve Gran (1889 - 1980), flugmaður
  • Edvard Grieg (1843 - 1907), tónsmiður
  • Nordahl Grieg (1902 - 1943), rithöfundur
  • Inger Hagerup (1905 - 1985), rithöfundur
  • Ludvig Holberg (1684 - 1754), leikritahöfundur og fræðimaður
  • Sissel Kyrkjebø (1969), söngkona
  • Vibeke Løkkeberg (1945), kvikmyndakona
  • Kurt Nilsen, (1978), söngvari og Idol-stjarna
  • Amalie Skram (1846 - 1905), rithöfundur
  • Gunnar Staalesen (1947), rithöfundur
  • Harald Sæverud (1897 - 1992), tónsmiður
  • Johan Sebastian Welhaven (1807 - 1873), rithöfundur
  • Einar Selvik (1979-), tónlistarmaður (Wardruna)

Vinabæir

Vinabæir Björgvins eru eftirfarandi:

Tilsvísanir

Wikiwand - on

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.