Cai-Göran Alexander Stubb (f. 1. apríl 1968) er finnskur stjórnmálamaður og núverandi forseti Finnlands. Stubb var kjörinn forseti í seinni umferð finnsku forsetakosninganna árið 2024. Hann var áður forsætisráðherra Finnlands frá 2014 til 2015 og fjármálaráðherra frá 2015 til 2016. Stubb var leiðtogi finnska Samstöðuflokksins frá 14. júní 2014 til 11 júní 2016. Stubb hefur jafnframt verið varaformaður Evrópska fjárfestingabankans og prófessor við European University Institute
Alexander Stubb | |
---|---|
Forseti Finnlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 1. mars 2024 | |
Forsætisráðherra | Petteri Orpo |
Forveri | Sauli Niinistö |
Forsætisráðherra Finnlands | |
Í embætti 24. júní 2014 – 29. maí 2015 | |
Forseti | Sauli Niinistö |
Forveri | Jyrki Katainen |
Eftirmaður | Juha Sipilä |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. apríl 1968 Helsinki, Uusimaa, Finnlandi |
Þjóðerni | Finnskur |
Stjórnmálaflokkur | Samstöðuflokkurinn |
Maki | Suzanne Innes-Stubb (g. 1998) |
Börn | 2 |
Háskóli | Furman-háskóli Paris-Sorbonne-háskóli Evrópuháskólinn London School of Economics |
Stubb er annar Finnlandssvíinn sem hefur gegnt embætti forseta Finnlands, á eftir Carl Gustaf Emil Mannerheim, og sá fyrsti sem hefur verið kjörinn í beinum kosningum.[1]
Bakgrunnur
Stubb á ættir að rekja til Esse í Pedersöre í sænskumælandi hluta Austurbotns og til Víborgar í Karelíu. Hann útskrifaðist með stúdentspróf frá Lärkan-menntaskólanum í Helsinki. Auk móðurmála sinna, sænsku og finnsku, talar hann ensku, frönsku og þýsku. Áður en hann hóf stjórnmálaferil vann hann sem embættismaður hjá Evrópusambandinu. Hann hefur starfað sem ráðgjafi fyrrverandi forseta framkvæmdastjórnar ESB, Romano Prodi, og ríkisstjórnar Finnlands á leiðtogafundum í Amsterdam og Nice. Þegar Finnland fór með forsæti Ráðs Evrópusambandsins árið 1999 var Stubb aðstoðarmaður sendiherrans Antti Satuli.
Eftir að Stubb gaf upp á bátinn áætlanir um að gerast atvinnumaður í golfi[2] nam hann stjórnmálafræði við Furman-háskóla í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum í fjögur ár. Eftir að hann útskrifaðist með kandídatspróf frá Furman-háskóla nam hann við Panthéon-Sorbonne-háskóla og Evrópuháskólann í Brugge. Hann útskrifaðist þaðan með meistaragráðu eftir eitt ár. Stubb varði doktorsritgerð sína um ESB-málefni við London School of Economics árið 1999.
Stubb hefur verið dálkahöfundur í ýmsum fréttablöðum og tímaritum. Hann hefur samið nokkrar bækur um Evrópusambandið og hefur jafnframt skrifað bók um maraþonhlaup. Hann stjórnaði útvarpsþættinum Sommar i P1 hjá Sveriges Radio þann 24. júní árið 2009.
Stjórnmálaferill
Alexander Stubb sat á Evrópuþinginu frá 2004 til 2008. Hann var utanríkisráðherra Finnlands í ríkisstjórnum Matti Vanhanen og Mari Kiviniemi frá 2004 til 2011 og utanríkis- og Evrópumálaráðherra í ríkisstjórn Jyrki Katainen frá 2011 til 2014. Hann var aftur kjörinn á Evrópuþingið Evrópuþingskosningunum 2014[3] en þann 14. júní sama ár var hann kjörinn flokksleiðtogi Samstöðuflokksins og var þá gert ráð fyrir því að hann yrði forsætisráðherra Finnlands þegar Jyrki Katainen tilkynnti afsögn sína þann 16. júní.[4] Finnska þingið kaus Stubb forsætisráðherra þann 23. júní 2014[5] og Sauli Niinistö forseti staðfesti ríkisstjórn hans daginn eftir.[6]
Stubb myndaði fimm flokka ríkisstjórn en Græningjar yfirgáfu stjórn hans í september 2014 eftir að ákvörðun var tekin um að reisa nýtt kjarnorkuver í norðurhluta Finnlands. Stubb sat sem forsætisráðherra út kjörtímabilið en ljóst þótti eftir kosningar árið 2015 að hann hefði ekki stuðning til að sitja áfram.[7]
Forsetaframboð
Stubb gaf kost á sér í forsetakosningum Finnlands árið 2024. Hann lenti í fyrsta sæti í fyrri umferð kosninganna, sem fóru fram þann 28. janúar. Stubb hlaut rúm 27 prósent en fyrrum utanríkisráðherrann Pekka Haavisto hlaut um 25 prósent.[8] Stubb var kjörinn forseti Finnlands í seinni umferð kosninganna þann 11. febrúar og hlaut þar um 52 prósent atkvæða gegn um 48 prósentum sem Haavisto hlaut. Bæði Stubb og Haavisto höfðu boðað svipaða stefnu í utanríkismálum sem gekk meðal áframhaldandi stuðning við Úkraínu og viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi.[9]
Einkahagir
Alexander Stubb er sonur íþróttamannsins Görans Stubb[10] og er er kvæntur enska lögfræðingnum Suzanne Innes-Stubb. Hann á með henni tvö börn sem eru fædd árin 2001 og 2004. Fjölskyldan býr í Esbo.
Stubb iðkar ýmsar íþróttir í tómstundum sínum, meðal annars þríþraut.[11]
Tilvísanir
Wikiwand in your browser!
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.