From Wikipedia, the free encyclopedia
Þetta er listi yfir forseta Finnlands. Þeir sem gegnt hafa því embætti eru[1][2]:
№. |
Mynd |
Forseti (fæðingarár – dánarár) |
Kjörin/n |
Tók við embætti |
Lét af embætti |
Stjórnmálaflokkur (fyrir kjör) |
Fæðingardagur, staður Dánardagur, staður |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. | Kaarlo Juho Ståhlberg (1865–1952) |
1919 | 26. júlí 1919 | 2. mars 1925 | Framsóknarflokkurinn | * 28. janúar 1865, Suomussalmi † 22. september 1952, Helsinki | |
Þingmaður (1908–1910, 1914–1918 og 1930–1933). Forseti finnska þingsins (1914–1917). Forseti æðsta stjórnsýsludómstóls Finnlands (1918–1919). Kjörinn forseti af finnska þinginu 1919. | |||||||
2. | Lauri Kristian Relander (1883–1942) |
1925 | 2. mars 1925 | 2. mars 1931 | Bændabandalagið | * 31. maí 1883, Kurkijoki † 9. febrúar 1942, Helsinki | |
Þingmaður (1910–1914 og 1917–1920). Forseti finnska þingsins (1919–1920). Sveitarstjóri Viipuri-héraðs (1920–1925). Kjörinn forseti af kjörmannaráði 1925. | |||||||
3. | Pehr Evind Svinhufvud (1861–1944) |
1931 | 2. mars 1931 | 1. mars 1937 | Samstöðuflokkurinn | * 15. desember 1861, Sääksmäki † 29. febrúar 1944, Luumäki | |
Meðlimur í efri málstofu finnska landsþingsins (1894 og 1899–1906). Þingmaður (1907–1917 og 1930–1931). Forseti finnska þingsins (1907–1913). Ríkisstjóri (bráðabirgðaþjóðhöfðingi) Finnlands (1918). Forsætisráðherra (1917–1918 og 1930–1931). Kjörinn forseti af kjörmannaráði 1931. | |||||||
4. | Kyösti Kallio (1873–1940) |
1937 | 1. mars 1937 | 19. desember 1940 (lést) |
Bændabandalagið | * 10. apríl 1873, Ylivieska † 19. desember 1940, Helsinki | |
Þingmaður (1907–1937). Formaður Bændabandalagsins (1909–1917). Landbúnaðarráðherra (1919–1920 og 1921–1922). Forseti finnska þingsins (1920–1921, 1922, 1924–1925, 1927–1928, 1929 og 1930–1936). Forsætisráðherra (1922–1924, 1925–1926, 1929–1930 og 1936–1937). Kjörinn forseti af kjörmannaráði 1937. Tilkynnti afsögn sína 1940 af heilsufarsástæðum en lést í embætti. | |||||||
5. | Risto Ryti (1889–1956) |
1940 1943 |
19. desember 1940 | 4. ágúst 1944 (sagði af sér) |
Framsóknarflokkurinn | * 3. febrúar 1889, Huittinen † 25. október 1956, Helsinki | |
Þingmaður (1919–1924 og 1927–1929). Fjármálaráðherra (1921–1922 og 1922–1924). Seðlabankastjóri (1923–1940 og 1944–1945). Forsætisráðherra (1939–1940). Kjörinn forseti af kjörmannaráði frá 1937 árið 1940 og endurkjörinn 1943, einnig af kjörmannaráðinu frá 1937. Sagði af sér árið 1944 vegna Ryti-Ribbentrop-samkomulagsins. | |||||||
6. | Carl Gustaf Mannerheim (1867–1951) |
1944 | 4. ágúst 1944 | 11. mars 1946 (sagði af sér) |
Óháður | * 4. júní 1867, Askainen † 27. janúar 1951, Lausanne, Sviss | |
Ríkisstjóri (bráðabirgðaþjóðhöfðingi) Finnlands (1918–1919). Leiðtogi finnska hersins (1939–1945). Eini hermarskálkur í sögu Finnlands. Skipaður forseti árið 1944 með undantekningarlöggjöf. Sagði af sér 1946 af heilsufarsástæðum. Eini óflokksbundni forseti Finnlands og eini forsetinn sem lést utan Finnlands. | |||||||
7. | Juho Kusti Paasikivi (1870–1956) |
1946 1950 |
11. mars 1946 | 1. mars 1956 | Samstöðuflokkurinn | * 27. nóvember 1870, Koski Hl. † 14. desember 1956, Helsinki | |
Þingmaður (1907–1909 og 1910–1914). Forsætisráðherra (1918 og 1944–1946). Kjörinn forseti af þinginu árið 1946 og endurkjörinn af kjörmannaráði árið 1950. | |||||||
8. | Urho Kekkonen (1900–1986) |
1956 1962 1968 1978 |
1. mars 1956 | 27. janúar 1982 (sagði af sér) |
Bændabandalagið | * 3. september 1900, Pielavesi † 31. ágúst 1986, Helsinki | |
Þingmaður (1936–1956). Dómsmálaráðherra (1936–1937 og 1944–1946). Innanríkisráðherra (1937–1939 og 1950–1951). Forseti finnska þingsins (1948–1950). Forsætisráðherra (1950–1953 og 1954–1956). Kjörinn forseti af kjörmannaráði 1956 og endurkjörinn 1962, 1968 og 1978. Árið 1973 var kjörtímabilið sem hóft árið 1968 framlengt um fjögur ár með undantekningarlögum. Sagði af sér 1982 af heilsufarsástæðum. Gegndi þjónustu í finnsku borgarastyrjöldinni. | |||||||
9. | Mauno Koivisto (1923–2017) |
1982 1988 |
27. janúar 1982 | 1. mars 1994 | Jafnaðarmannaflokkurinn | * 25. nóvember 1923, Turku † 12. maí 2017, Helsinki | |
Fjármálaráðherra (1966–1967 og 1972). Seðlabankastjóri (1968–1982). Forsætisráðherra (1968–1970 og 1979–1982). Kjörinn forseti af kjörmannaráði 1982 og endurkjörinn 1988. Fyrsti forsetinn sem fæddist eftir sjálfstæði Finnlands. Gegndi þjónustu í framhaldsstríðinu og seinni heimsstyrjöldinni. | |||||||
10. | Martti Ahtisaari (1937–2023) |
1994 | 1. mars 1994 | 1. mars 2000 | Jafnaðarmannaflokkurinn | * 23. júní 1937, Viipuri † 16. október 2023, Helsinki | |
Aðstoðar-aðalritari Sameinuðu þjóðanna (1987–1991). Kjörinn forseti 1994. Fyrsti forsetinn kjörinn í beinum kosningum. Hlaut friðarverðlaun Nóbels 2008. Meðlimur í Öldungunum. | |||||||
11. | Tarja Halonen (f. 1943) |
2000 2006 |
1. mars 2000 | 1. mars 2012 | Jafnaðarmannaflokkurinn | * 24. desember 1943, Helsinki | |
Þingmaður (1979–2000). Dómsmálaráðherra (1990–1991). Utanríkisráðherra (1995–2000). Kjörin forseti 2000 og endurkjörin 2006. Fyrsti kvenforseti Finnlands. | |||||||
12. | Sauli Niinistö (f. 1948) |
2012 2018 |
1. mars 2012 | 1. mars 2024 | Samstöðuflokkurinn | * 24. ágúst 1948, Salo | |
Þingmaður (1987–2003 og 2007–2011). Formaður Samstöðuflokksins (1994–2001). Dómsmálaráðherra (1995–1996). Fjármálaráðherra (1996–2003). Forseti finnska þingsins (2007–2011). Kjörinn forseti 2012 og endurkjörinn 2018. | |||||||
13. | Alexander Stubb (f. 1968) |
2024 | 1. mars 2024 | Enn í embætti | Samstöðuflokkurinn | * 1. apríl 1968, Helsinki | |
Evrópuþingmaður (2004–2008). Þingmaður (2011–2017). Utanríkisráðherra (2008–2011). Evrópumála- og verslunarráðherra (2011–2014). Forsætisráðherra (2014–2015). Formaður Samstöðuflokksins (2014–2016). Fjármálaráðherra (2015–2016). Kjörinn forseti 2024. | |||||||
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.