![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/89/Wuxi_collage.jpg/640px-Wuxi_collage.jpg&w=640&q=50)
Wuxi
stórborg í suðurhluta Jiangsu-héraðs í Austur-Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Wuxi (kínverska: 無錫; rómönskun: Wúxī; er stórborg í suðurhluta Jiangsu-héraðs í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína.
Wuxi
無錫 | |
---|---|
![]() | |
Hnit: 31°29′28″N 120°18′43″A | |
Land | ![]() |
Hérað | Jiangsu |
Stjórnarfar | |
• Flokksritari | Du XiaoGang |
• Borgarstjóri | Zhao JianJun |
Flatarmál | |
• Samtals | 4.628 km2 |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 7.462.135 |
Tímabelti | UTC+8 |
Póstnúmer | 214000 (þéttbýli) 214200, 214400 (annars staðar) |
Svæðisnúmer | 510 |
Vefsíða | www |
![Jichang garðurinn í Liangxi hverfi Wuxi er frægur kínverskur garður. Hann er sagður fyrirmynd Xiequ garðsins í Sumarhöll Pekingborgar og Guo Ran Da Gong í Yuanming Yuan í Peking.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3b/Jichang_Yuan.jpg/640px-Jichang_Yuan.jpg)
Wuxi er staðsett meðfram Miklaskurði á mótum þess farvegs við staðbundnar ár nálægt norðausturhorni Tai-vatns. Í gegnum borgina liggur þétt net skurða og skipgengra vatnaleiða í suðurhluta Jangtse- fljótsins. Borgin er um 135 kílómetra norðvestur af miðborg Sjanghæ, á milli borganna Changzhou og Suzhou.
Wuxi er fræg sögu- og menningarborg Kína og ein helsta ferðamannaborg landsins. Borgin státar af meira en 3.000 ára sögu og djúpstæðum menningararfi. Hún var heimili Wu-menningar í fornöld og hefur ríka sögulega arfleifð. Í henni eru 31 mikilvægir sögustaðir er njóta verndar ríkisins, 11 staðir sem hafa sterka skírskotun til kínversks menningararfs, auk 60 safna og minnisvarða.
Wuxi er ekki aðeins hefðbundin fisk- og hrísgrjónavatnaborg við Jangtse fljót, heldur einnig vagga nútíma kínverskrar þjóðariðnaðar og ein efnahagsmiðstöða Kína, með öflugum fyrirtækjum í viðskiptum, ekki síst sterkum einkafyrirtækjum.
Á kínverskan mælikvarða er Wuxi borg hagsældar. Sterk vísbending um efnahagslega velferð er landsframleiðsla á mann. Þar var Wuxi borg árið 2021 efst allra stórra og meðalstórra kínverskra borga Kína.[3]
Héraðsborgin Wuxi nær yfir 4.627 ferkílómetra lands. Hún hefur lögsögu yfir 5 hverfum og tveimur sýsluborgum. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Wuxi um 7,5 milljónir manna en 4 milljónir í kjarnaborginni.