![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4b/Vesturbygg%25C3%25B0_fr%25C3%25A1_2024_kort.png/640px-Vesturbygg%25C3%25B0_fr%25C3%25A1_2024_kort.png&w=640&q=50)
Vesturbyggð
Sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vesturbyggð er sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum. Það varð til 11. júní 1994 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga: Barðastrandarhrepps, Rauðasandshrepps, Bíldudalshrepps og Patrekshrepps. Upphaflega var sameiningartillaga við Tálknafjarðarhrepp felld en árið 2023 var aftur kosið um sameiningu og var hún samþykkt[2][3] og er því Vesturbyggð eina sveitarfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum. Sveitarfélagið nær yfir alla suðurfirði Vestfjarða frá Arnarfirði að Kjálkafirði.
Vesturbyggð | |
---|---|
![]() Staðsetning Vesturbyggðar | |
Hnit: 65.598°N 24.002°V / 65.598; -24.002 | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Gerður Björk Sveinsdóttir [1] |
Flatarmál | |
• Samtals | 1.511 km2 |
• Sæti | 23. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 1.356 |
• Sæti | 30. sæti |
• Þéttleiki | 0,9/km2 |
Póstnúmer | 450, 451, 465 |
Sveitarfélagsnúmer | 4607 |
Vefsíða | vesturbyggd |
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Til Vesturbyggðar teljast byggðakjarnarnir Birkimelur á Barðaströnd, Bíldudalur, Tálknafjörður og Patreksfjörður og sveitirnar Barðaströnd, Breiðavík, Hænuvík, Ketildalir, Látrar, Rauðisandur og Suðurfirðir. Fyrrum voru sex hreppar á suðursvæði Vestfjarða: Barðastrandahreppur, Ketildalahreppur, Patrekshreppur, Rauðasandshreppur, Suðurfjarðahreppur og Tálknafjarðarhreppur.