strönd og byggðarlag í Vesturbyggð á Vestfjörðum From Wikipedia, the free encyclopedia
Rauðisandur eða Rauðasandur er byggðarlag í Vesturbyggð á Vestfjörðum og liggur frá Skorarhlíðum út að Látrabjargi. Undirlendið er fremur mjótt og upp frá því rísa fjöll með bröttum hlíðum og háum hömrum. Allmikið sjávarlón, Bæjarvaðall, sker sveitina í sundur og út frá því liggur langt og mjótt lón til vesturs, en framan við það er rif úr rauðgulum skeljasandi og er nokkuð víst að sveitin dregur nafn af sandinum, þótt í Landnámabók segi að Ármóður rauði Þorbjarnarson hafi numið land á Rauðasandi.
Rauðisandur er rauður á litinn út af skeljum af hörpudiski. [1]
Sveitin er grösug og veðursæl og var áður þéttbýl en nú hefur bæjum í byggð fækkað mjög. Helsta höfuðbólið er Saurbær eða Bær. Þar bjuggu ýmsir höfðingjar fyrr á öldum og á 16. og 17. öld var Saurbær sýslumannssetur. Annar þekktur bær á Rauðasandi er eyðibýlið Sjöundá, þar sem hryllileg morð voru framin í byrjun 19. aldar.
Umhverfisstofnun stefnir að því að friðlýsa í áföngum Rauðasand, ásamt Látrabjargi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.