Forsætisráðherra Bretlands From Wikipedia, the free encyclopedia
Anthony Charles Lynton Blair (fæddur 6. maí 1953) oftast þekktur sem Tony Blair er fyrrum forsætisráðherra Bretlands. Hann leiddi Verkamannaflokkinn frá júlí 1994 til 24. júní 2007 og komst til valda eftir yfirburðasigur flokksins í þingkosningunum 1997. Hann tók þá við forsætisráðherraembættinu af John Major og batt enda á 18 ára samfellda stjórn Íhaldsmanna. Tony Blair hefur setið lengst allra forsætisráðherra Verkamannaflokksins og er sá eini sem hefur leitt flokkinn til sigurs í þremur þingkosningum í röð.
Tony Blair | |
---|---|
Forsætisráðherra Bretlands | |
Í embætti 2. maí 1997 – 27. júní 2007 | |
Þjóðhöfðingi | Elísabet 2. |
Forveri | John Major |
Eftirmaður | Gordon Brown |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 6. maí 1953 Edinborg, Skotlandi, Bretlandi |
Þjóðerni | Breskur |
Stjórnmálaflokkur | Verkamannaflokkurinn |
Maki | Cherie Booth (g. 1980) |
Börn | 4 |
Háskóli | St John's College, Oxford |
Blair færði flokkinn nær miðjunni í breskum stjórnmálum og kallað þessa stefnubreytingu „nýja Verkamannaflokkinn“ (e. New Labour). Flokkurinn varð undir hans forystu jákvæðari gagnvart markaðshagkerfinu og fráhverfari þjóðnýtingu. Þessari stefnu hafa verið gefin nöfn á borð við „nútímajafnaðarmennsku“ og „þriðja leiðin“ en margir af vinstrisinnaðri flokksmönnum hafa orðið til að gagnrýna stefnubreytinguna og álíta flokkinn hafa færst of langt til hægri og snúið baki við þeim hugsjónum sem flokkurinn var byggður á, eins og jafnari skiptingu auðs í samfélaginu.
Hörð gagnrýni á Blair hefur einnig risið vegna þátttöku Breta í „stríðinu gegn hryðjuverkum“ og innrásinni í Írak. Í kosningum 2005 tapaði flokkurinn miklu fylgi en hélt þó meirihlutanum. Gordon Brown leysti Blair af sem forsætisráðherra.
Fyrirrennari: John Major |
|
Eftirmaður: Gordon Brown |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.