![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/thumb/a/a0/C-SimpFamily.png/640px-C-SimpFamily.png&w=640&q=50)
Simpsonfjölskyldan
bandarískur sjónvarpsþáttur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Simpson-fjölskyldan (enska The Simpsons) eru bandarískir teiknimyndaþættir eftir Matt Groening. Þættirnir hófu feril sinn í sem stuttar teiknimyndir í Tracey Ullman-þáttunum 1987 en urðu að 22 mínútna löngum þáttum sem voru sýndir á Fox í Bandaríkjunum 1989. Þættirnir gera oft grín að bandarísku þjóðinni, sjálfum sér eða öðrum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Fjölskyldan samanstendur af bráða fjölskylduföðurnum Homer Jay Simpson, skynsömu móðurinni Marjorie (Marge) Simpson, prakkaranum Bartholomew (Bart) Jojo Simpson, hinni gáfuðu og feimnu Lisu Marie Simpson og kornabarninu Margret (Maggie) Simpson. Fjölskyldan býr að Evergreen Terrace 742 í Springfield.
Á Íslandi var Simpsonfjölskyldan fyrst sýnd í sjónvarpi 7. janúar árið 1991.[1] Fyrstu árin voru þættirnir sýndir á RÚV, en árið 1998 tók Stöð 2 þá til sýninga og hafa þeir verið sýndir þar síðan.[2]
Simpsonfjölskyldan | |
---|---|
![]() Simpsonfjölskyldan. | |
Einnig þekkt sem | The Simpsons |
Tegund | Teiknimynd |
Búið til af | Ýmsir |
Þróun | James L. Brooks Matt Groening Sam Simon |
Leikstjóri | Ýmsir |
Kynnir | FOX RÚV (1991–98) Stöð 2 (frá 1998) |
Talsetning | Dan Castellaneta Julie Kavner Nancy Cartwright Yeardley Smith Hank Azaria Harry Shearer |
Höfundur stefs | Danny Elfman |
Upphafsstef | The Simpsons |
Lokastef | The Simpsons |
Tónskáld | Alf Clausen |
Upprunaland | ![]() |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 31 |
Fjöldi þátta | 665 |
Framleiðsla | |
Aðalframleiðandi | 20th Television Gracie Films |
Framleiðandi | Al Jean |
Lengd þáttar | 20-24 mín. |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | FOX |
Myndframsetning | SD: 4:3, 480i/576i (1989–2009) HD: 16:9, 720p (frá 2009) |
Hljóðsetning | Stereo (1989–91) Dolby Surround 2.0 (1991–2009) 5.1 Surround Sound (frá 2009) |
Sýnt | 17. desember 1989 – |
Tímatal | |
Undanfari | The Simpsons Shorts |
Tengdir þættir | The Tracey Ullman Show Futurama |
Tenglar | |
Vefsíða |