Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra 2017- From Wikipedia, the free encyclopedia
Sigurður Ingi Jóhannsson (f. 20. apríl 1962) er fjármálaráðherra Íslands og formaður Framsóknarflokksins. Hann er leiðtogi Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi. Hann var sjávarutvegs- og landbúnaðarráðherra frá 2013 til 2016, umhverfisráðherra frá 2013 til 2014, forsætisráðherra Íslands frá 2016 til 2017 og innviðaráðherra frá 2017 til 2024.[1]
Sigurður Ingi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1982 og tók embættispróf í dýralækningum frá Konunglega dýralækna- og landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann fékk almennt dýralæknaleyfi í Danmörku árið 1989 og á Íslandi árið1990.
Sigurður Ingi var varaformaður Framsóknarflokksins frá 2013 til 2016. Sigurður Ingi var landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra 2013-2016, umhverfisráðherra 2013-2014 og gegnd embætti forsætisráðherra frá apríl 2016, er hann tók við embættinu við afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eftir Wintris-málið svonefnda, eftir birtingu Panama-skjalanna fram yfir alþingiskosningar 2016 og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt 30. október 2016 en gengdi embættinu til 11. janúar 2017.
Sigurður Ingi var kjörinn formaður Framsóknarflokksins 2. október 2016 með 52,6% atkvæða í baráttunni um embættið við Sigmund Davíð.
Sigurður Ingi sat í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis 2009-2010.
Á Búnaðarþingi 2022 lét Sigurður Ingi Jóhannsson falla ummæli um framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands sem almennt voru talin byggja á fordómafullum hugmyndum um kynþætti.[2][3] Sigurður Ingi Jóhannsson baðst afsökunar á ummælunum en neitaði þó að þau hafi byggt á fordómafullum hugmyndum um kynþætti.[4]
Deilt var um hvort ummælin hefðu varðað við lög og Arndís Anna K. Gunnarsdóttir spurði Sigurð Inga Jóhannsson opinberlega hvort hann telji ummæli sín falla undir skilgreiningar laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna á 72. fundi Alþingis þann 29.4.2022. Sigurður Ingi Jóhannsson svaraði því ekki en sagði málið vega þungt á fjölskyldu sína og vini.[5][6]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.