Saddam Hussein
Einræðisherra í Írak / From Wikipedia, the free encyclopedia
Saddam Hussein Abd al-Majid al-Tikriti (28. apríl 1937 – 30. desember 2006) var forseti Íraks frá 1979 fram að árás Bandaríkjamanna inn í landið 2003. Hann var handtekinn af herliði Bandamanna 13. desember 2003 og dæmdur til dauða 5. nóvember 2006. Hann var hengdur þann 30. desember 2006 samkvæmt dómsúrskurði.
Saddam Hussein صدام حسين | |
---|---|
Forseti Íraks | |
Í embætti 16. júlí 1979 – 9. apríl 2003 | |
Forsætisráðherra | Hann sjálfur (1979–1991) Sa'dun Hammadi (1991) Mohammed Hamza Zubeidi (1991–1993) Ahmad Husayn Khudayir as-Samarrai (1993–1994) Hann sjálfur (1994–2003) |
Varaforseti | Taha Muhie-eldin Marouf (1974–2003) Izzat Ibrahim al-Douri (1979–2003) Taha Yassin Ramadan (1991–2003) |
Forveri | Ahmed Hassan al-Bakr |
Eftirmaður | Jay Garner (sem foringi bandaríska hernámsliðsins) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 28. apríl 1937 Al-Awja, Tikrit, Írak |
Látinn | 30. desember 2006 (69 ára) Bagdad, Írak |
Þjóðerni | Íraskur |
Stjórnmálaflokkur | Ba'ath-flokkurinn |
Maki | Sajida Talfah Samira Shahbandar |
Börn | Uday, Qusay, Raghad, Rana, Hala |
Starf | Hermaður, stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Saddam Hussein var alræmdur fyrir harðstjórn sína og hrottaskap gegn andófsmönnum. Fjölmargar erlendar ríkisstjórnir og alþjóðasamtök sökuðu hann um mannréttindabrot, stríðsglæpi, morð, glæpi gegn mannkyninu og þjóðarmorð. Sumir hlutar Arabaheimsins telja hann þó hafa sett gott fordæmi með andstöðu sinni við bandarísk og ísraelsk yfirráð í miðaustrinu. Mikill ófriður og pólitískur óstöðugleiki hefur ríkt í Írak frá því að Saddam var rekinn frá völdum.[1]