![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d3/Supreme_pizza.jpg/640px-Supreme_pizza.jpg&w=640&q=50)
Pizza
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pizza[1] eða pítsa (einnig flatbaka, en íslenskur ritháttur er pitsa[1] samkvæmt Stafsetningarorðabókinni[2]) er flatur brauðbotn, oftast kringlóttur, hulinn tómatsósu og osti, ásamt annarskonar áleggi ef vill. Osturinn er venjulega mozzarella eða „pizza-ostur“. Hægt er að nota ýmislegt sem álegg ofan á pizzu, til dæmis hakkað kjöt, sneiddar pylsur og annað kjötálegg af ýmsu tagi (t.d. pepperóní eða skinku), ávexti og grænmeti (t.d. ananas, ólífur, banana, tómata, lauk, papriku, hvítlauk og sveppi). Ýmislegt krydd er hægt að nota til að bragðbæta pizzuna enn frekar. Skorpan er venjulega ekki meðhöndluð sérstaklega, en þó er t.d. hægt að krydda hana, olíubera eða jafnvel fylla með osti.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d3/Supreme_pizza.jpg/640px-Supreme_pizza.jpg)
Pizzu er hægt að snæða á veitingastöðum, baka hana heima eða kaupa hana tilbúna (oft frosna) í stórmörkuðum. Í mörgum löndum er hægt að panta pizzu með einu símtali og fá hana senda heim að dyrum, nýbakaða og tilbúna til átu. Pizza er venjulega snædd heit.