![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/de/EM_NHL_STORE_%25282742787346%2529.jpg/640px-EM_NHL_STORE_%25282742787346%2529.jpg&w=640&q=50)
National Hockey League
Norður-Amerísk atvinnudeild í íshokkí / From Wikipedia, the free encyclopedia
National Hockey League (skammstafað NHL) er atvinnudeild í íshokkí sem samanstendur af 31 félögum: 24 bandarískum og 7 kanadískum. Deildin hefur höfuðstöðvar í New York-borg og hún er víða talin besta íshokkí deild heims[1] og ein stærsta atvinnumanna deild Bandaríkjanna og Kanada. Sigurvegari deildarinnar fær þáttökurétt í Stanley-bikarnum, elsta atvinnu íþróttabikar Norður-Ameríku.[2]
Stofnuð | 26. nóvember 1917 |
---|---|
Fjöldi liða | 31 |
Land | ![]() ![]() |
Sigursælasta liðið | Montreal Canadiens (24 titlar) |
Opinber heimasíða | NHL.com |
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/de/EM_NHL_STORE_%282742787346%29.jpg/640px-EM_NHL_STORE_%282742787346%29.jpg)
Deildin var stofnuð 26. nóvember 1917 í Montreal, Quebec, Kanada eftir að móðurfélag þess, National Hockey Association (NHA) hætti störfum en félagið hafði verið stofnað 1909.[3] Deildin byrjaði með fjórum liðum (öllum búsettum í Kanada) og eftir nokkrar stækkanir og yfirfærslur samanstendur hún nú af 30 félögum. Þjóðin sem er átt við í nafni deildarinnar var Kanada, þótt að deildin hefur verið á milli liða í tveim löndum síðan 1924, en þá byrjaði fyrsta lið Bandaríkjanna, Boston Bruins að leika í deildinni.