Forsætisráðherra Ísraels From Wikipedia, the free encyclopedia
Naftali Bennett (f. 25. mars 1972) er ísraelskur stjórnmálamaður og fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels. Hann er þrettándi forsætisráðherra landsins og gegndi embættinu frá 13. júní 2021 til 30. júní 2022.[1]
Naftali Bennett נַפְתָּלִי בֶּנֶט | |
---|---|
Forsætisráðherra Ísraels | |
Í embætti 13. júní 2021 – 30. júní 2022 | |
Forseti | Reuven Rivlin Isaac Herzog |
Forveri | Benjamin Netanyahu |
Eftirmaður | Yair Lapid |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 25. mars 1972 Haífa, Ísrael |
Þjóðerni | Ísraelskur |
Stjórnmálaflokkur | Nýja hægrið |
Maki | Gilat Bennett (g. 1999) |
Trúarbrögð | Gyðingdómur |
Börn | 4 |
Háskóli | Hebreski háskólinn í Jerúsalem |
Starf | Hermaður, viðskiptamaður, stjórnmálamaður |
Bennett var ráðherra í málefnum Gyðinga utan Ísraels frá 2013 til 2019 og varnarmálaráðherra frá 2013 til 2019. Hann hefur verið leiðtogi flokksins Nýja hægrisins frá árinu 2018 en var áður leiðtogi flokksins Heimkynna Gyðinga frá 2012 til 2018.[2]
Bennett er fæddur og uppalinn í Haífa og er sonur innflytjenda frá Bandaríkjunum. Hann gegndi þjónustu í sérsveitunum Sayeret Matkal og Maglan innan ísraelska hersins og stýrði mörgum hernaðaraðgerðum. Að lokinni herþjónustu gerðist hann athafnamaður í hugbúnaðariðnaðinum og tók árið 1999 þátt í stofnun bandaríska fyrirtækisins Cyota, sem vann að forvörnum gegn netbankasvindli og netveiðum.[3] Bennett seldi fyrirtækið árið 2005 fyrir 145 milljónir Bandaríkjadala. Bennett var jafnframt framkvæmdastjóri Soluto, ísraelskrar skýþjónustu, sem seldist árið 2013 fyrir um 100 til 130 milljónir Bandaríkjadala.[4]
Bennett hóf þátttöku í stjórnmálum árið 2006 og var starfsmannastjóri Benjamins Netanyahu til ársins 2008. Árið 2011 stofnaði hann ásamt Ayelet Shaked utanþingshreyfinguna Mitt Ísrael.[5] Árið 2012 var Bennett kjörinn flokksleiðtogi Heimkynna Gyðinga. Í fyrstu kosningunum sem flokkurinn tók þátt í undir stjórn Bennetts árið 2012 vann flokkurinn 12 af 120 sætum á Knesset-þinginu.[6] Bennett varð efnahags- og trúmálaráðherra í ríkisstjórn Benjamins Netanyahu frá 2015 til 2019. Í desember árið 2018 sagði Bennett sig úr Heimkynnum Gyðinga og stofnaði nýjan flokk, Nýja hægrið.[7]
Þann 2. júní 2021 féllst Bennett á að mynda samsteypustjórn ásamt Yair Lapid. Stjórnarsáttmálinn gerir ráð fyrir að Bennett verði forsætisráðherra til ársins 2023 en Lapid taki síðan við embættinu og gegni því til 2025.[8] Bennett tók við embættinu þann 13. júní 2021. Hann er annar forsætisráðherra Ísraels (á eftir Netanyahu) sem er fæddur eftir stofnun Ísraelsríkis.
Ríkisstjórn Bennetts sprakk eftir um eitt ár vegna ósættis meðal stjórnarflokkanna, sem voru afar ólíkir innbyrðis. Yair Lapid tók við af Bennett sem forsætisráðherra til bráðabirgða fram að nýjum kosningum þann 1. júlí 2022.[9]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.