![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f2/Nadia_Murad_2017_%2528cropped%2529.jpg/640px-Nadia_Murad_2017_%2528cropped%2529.jpg&w=640&q=50)
Nadia Murad
Jasidísk kvenréttindakona og Nóbelsverðlaunahafi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Nadia Murad Basee Taha (kúrdíska: نادیە موراد باسی تەھا; arabíska: نادية مراد باسي طه; f. 10. mars 1993) er jasídísk-íraskur mannréttindafrömuður og aðgerðasinni sem er búsett í Þýskalandi. Henni var rænt og haldið í kynlífsánauð af íslamska ríkinu í þrjá mánuði árið 2014. Árið 2018 hlutu þau Denis Mukwege friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu þeirra gegn kynferðisbrotum í stríði.[1] Murad er fyrsti Írakinn sem hefur hlotið Nóbelsverðlaun. Hún er jafnframt næstyngsti Nóbelsverðlaunahafinn frá upphafi, á eftir Malölu Yousafzai.[2]
Staðreyndir strax Fædd, Þjóðerni ...
Nadia Murad | |
---|---|
![]() Nadia Murad árið 2017. | |
Fædd | 10. mars 1993 (1993-03-10) (31 árs) Kocho, Írak |
Þjóðerni | Írösk (jasídísk) |
Störf | Mannréttindafrömuður, aðgerðasinni |
Maki | Abid Shamdeen |
Verðlaun | Sakharov-verðlaunin (2016)![]() |
Vefsíða | nadiasinitiative.org |
Loka
Murad er stofnandi samtakanna Nadia's Initiative, sem ætlað er að „hjálpa konum og börnum sem hafa orðið fyrir barðinu á þjóðarmorðum, fjöldaofsóknum og mansali að ná heilsu og endurbyggja líf sín og samfélög.“[3]