![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f7/Mohammad_Najibullah_1986.jpg/640px-Mohammad_Najibullah_1986.jpg&w=640&q=50)
Mohammad Najibullah
Forseti Afganistans (1947-1996) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mohammad Najibullah Ahmadzai (pastú: محمد نجیبالله احمدزی; 6. ágúst 1947 – 27. september 1996), gjarnan kallaður Dr. Najib, var afganskur stjórnmálamaður sem var forseti Afganistans frá 1987 til 1992. Najibullah var leiðtogi Lýðræðislega alþýðuflokksins, sem fór fyrir kommúnísku flokksræði í Alþýðulýðveldinu Afganistan frá 1978 til 1992.
Mohammad Najibullah | |
---|---|
![]() Mohammad Najibullah árið 1986. | |
Forseti Afganistans | |
Í embætti 30. september 1987 – 16. apríl 1992 | |
Forsætisráðherra | |
Varaforseti | |
Forveri | Múhameð Daúd Khan (1978) |
Eftirmaður | Burhanuddin Rabbani |
Aðalritari miðnefndar Alþýðulýðræðisflokks Afganistans | |
Í embætti 4. maí 1986 – 16. apríl 1992 | |
Forveri | Babrak Karmal |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 6. ágúst 1947 Gardez, Afganistan |
Látinn | 27. september 1996 (49 ára) Kabúl, Afganistan |
Dánarorsök | Hengdur |
Stjórnmálaflokkur | Lýðræðislegi alþýðuflokkurinn |
Maki | Fatana Najib |
Börn | 3 |
Háskóli | Háskólinn í Kabúl |
Starf | Læknir, stjórnmálamaður |
Allan þann tíma sem Najibullah var við völd átti stjórn hans í borgarstríði gegn andspyrnuhreyfingum Mujahideen-liða sem nutu stuðnings Bandaríkjanna. Sovétríkin höfðu barist við hlið kommúnistastjórnarinnar frá árinu 1979 en sovéski herinn var kallaður frá Afganistan árið 1988. Najibullah tókst ekki að stilla til friðar eftir brottför Sovétmanna og hann neyddist til að segja af sér árið 1992, stuttu áður en Mujahideen-liðar hertóku afgönsku höfuðborgina Kabúl.
Eftir afsögn sína reyndi Najibullah að flýja til Indlands en tókst það ekki. Hann bjó í einangrun í Kabúl næstu fjögur árin en var tekinn af lífi með hrottafengnum hætti þegar Talíbanar komust til valda árið 1996.