![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/76/Las_Vegas_strip.jpg/640px-Las_Vegas_strip.jpg&w=640&q=50)
Las Vegas
From Wikipedia, the free encyclopedia
Las Vegas er stærsta borg Nevada-fylkis í Bandaríkjunum. Borgin er aðallega þekkt fyrir fjölda spilavíta. Í borginni búa um 645.000 (2018) en ef nærliggjandi svæði eru talin með búa þar um 2,2 milljón manns. Las Vegas er stjórnaraðsetur Clark-sýslunnar. Las Vegas er einn af vinsælustu ferðamannastöðum heims.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/76/Las_Vegas_strip.jpg/640px-Las_Vegas_strip.jpg)
Nafnið Las Vegas er oft látið ná yfir önnur svæði Clark-sýslunnar sem umlykja borgina. Þannig er hin 7,25 km langa aðalgata borgarinnar, Las Vegas Boulevard, að mestu utan borgarmarka Las Vegas eða í bænum Paradise.
Fyrir utan spilavítin eru það aðallega hinar mörgu sýningar sem eru einkennandi fyrir borgina. Listamenn sem starfa eða störfuðu í Las Vegas eru m.a. Elvis Presley, Tom Jones, Frank Sinatra og Céline Dion. Þá eru margar brúðkaupskapellur í borginni, sem orsakast af því að lög um hjúskaparstofnun (og hjúskaparslit) eru sérlega einföld.
Borgin er stundum kölluð Sin City vegna mikilla (löglegra) fjárhættuspila, mikils framboðs á áfengum drykkjum allan sólarhringinn, fíkniefna, margvíslegs framboðs á erótískum skemmtunum og lögleiðingu vændis í nærliggjandi sýslu. Stjórnvöld og ferðamálafrömuðir svæðisins styðja aftur á móti nafngiftina The Entertainment Capital of the World (skemmtanahöfuðborg heimsins).
Bein þýðing á nafninu yfir á íslensku úr spænsku væri eiginlega "Túnin" eða engin.