From Wikipedia, the free encyclopedia
Spilavíti er bygging eða stofnun þar sem stundað er fjárhættuspil. Spilavíti eru oftast í nágrenni hótela, veitingastaða, verslunarmiðstaða, skemmtiferðaskipa og annarra staða þar sem ferðamenn leita eftir afþreyingu. Það er umdeilt hvort þær tekjur sem spilavíti skapa vegi á móti félagslegum og efnahagslegum áhrifum þeirra.
Spilavíti hafa verið bönnuð á Íslandi í rúm 100 ár, eða síðan 1926 þegar fyrst voru sett lög um happdrætti og hlutaveltur. Þrátt fyrir þetta bann veðja Íslendingar mikið í erlendum netspilum og spilavítum. Árið 2023 vörðu Íslendingar næstmestum fjármunum í veðmál af öllum Evrópuríkjum, á eftir Írum. Hver Íslendingur eyðir að meðaltali 80 þúsund krónum á ári í veðmál[1].
Veðmálamarkaðurinn á Íslandi hefur fimmfaldast að stærð á síðustu 20 árum. Árið 2003 fóru 91% veðmála fram hjá innlendum rekstraraðilum, en síðan þá hefur hlutdeild erlendra aðila fimmfaldast. Þessi þróun endurspeglar breyttar neysluvenjur Íslendinga, sem sækja í auknum mæli í þjónustu erlendra netspilasíða, bæði fyrir íþróttaveðmál og spilavítisleiki.[2]
Lagt hefur verið til að leyfa spilavíti á Íslandi. Nokkrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp þar að lútandi. [3]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.