konungur Danmerkur frá 1863 til 1906 From Wikipedia, the free encyclopedia
Kristján 9. var konungur Danmerkur 1863 – 1906. Hann fæddist 8. apríl 1818 í Gottorpshöll (Gottorp Slot) og dó 29. janúar 1906 í Amalienborgarhöll.
| ||||
Kristján 9. | ||||
Ríkisár | 1863 – 1906 | |||
Skírnarnafn | Kristján prins af Schleswig-Holstein-Sonderburg-Beck | |||
Kjörorð | Med Gud for Ære og Ret. | |||
Fæddur | 8. apríl 1818 | |||
Gottorpshöll í Slésvík | ||||
Dáinn | 29. janúar 1906 (87 ára) | |||
Amaliuborg í Kaupmannahöfn | ||||
Gröf | í Hróarskeldudómkirkju | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Vilhjálmur, Hertogi af Slesvig-Holsten-Sønderborg-Glücksborg | |||
Móðir | Louise Karoline af Hessen-Kassel | |||
Drottning | Louise af Hessen-Kassel | |||
Börn |
|
Friðrik 7. konungur af Aldinborgarætt var barnlaus, en hann útnefndi þennan fjarskylda frænda sinn af Lukkuborgarætt til þess að taka við krúnunni eftir sinn dag. Kona Kristjáns (og síðar drottning Danmerkur) var Louise af Hessen-Kassel, en hún var náskyld Friðriki konungi og hafði erfðarétt og er talið að það hafi verið helsta orsök þessarar tilnefningar.
Þessi konungshjón, Kristján 9. og Louise af Hessen-Kassel urðu þekkt sem „tengdaforeldrar Evrópu“. Fjögur barna þeirra urðu þjóðhöfðingjar eða makar þjóðhöfðingja. Þau voru: Friðrik, konungur Danmerkur, Alexandra drottning í Englandi, gift Albert Edward prins af Wales, sem síðar varð konungur Englands undir nafninu Játvarður 7., Dagmar keisaraynja Rússlands gift Alexander 3. sem tók sér nafnið Maria Feodorovna og Vilhelm, sem varð Georg 1. konungur Grikklands.
Meðal núlifandi (2021) afkomenda Kristjáns og Louise af Lukkuborgarætt má nefna Margréti 2. Þórhildi Danadrottningu, Elísabetu 2. Bretadrotningu, Harald 5. Noregskonung, Konstantin 2. fyrrum Grikkjakonung og Önnu-Maríu drottningu hans, systur Konstantíns Soffíu, fyrrum Spánardrottningu, son hennar Filippus 6. Spánarkonung, Filippus prins og hertoga af Edinborg (sem fæddist prins af Grikklandi og Danmörku, en afsalaði sér þeim titlum 1947 við brúðkaup sitt og Elísabetar og fékk í staðinn breska aðalstitla ) og son hans Karl 3. Bretakonung. Breska grein ættarinnar kallar sig Windsor-ætt og hin spænska Borbón-Anjou.
Fyrirrennari: Friðrik 7. |
|
Eftirmaður: Friðrik 8. |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.