![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/40/Kristj%25C3%25A1n_Eldj%25C3%25A1rn_%25281982%2529.jpg/640px-Kristj%25C3%25A1n_Eldj%25C3%25A1rn_%25281982%2529.jpg&w=640&q=50)
Kristján Eldjárn
3. forseti Íslands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kristján Þórarinsson Eldjárn (fæddur á Tjörn í Svarfaðardal 6. desember 1916 – dáinn 14. september 1982) var íslenskur fornleifafræðingur og þriðji forseti Íslands árin 1968 – 1980. Foreldrar hans voru hjónin Þórarinn Kr. Eldjárn, bóndi og kennari á Tjörn, og Sigrún Sigurhjartardóttir. Kristján lauk fyrrihlutaprófi í fornleifafræði frá Kaupmannahafnarháskóla en lærði síðan íslensk fræði við Háskóla Íslands. Hann lauk doktorsprófi árið 1957 og nefnist ritgerð hans Kuml og haugfé í heiðnum sið á Íslandi.
![]() |
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Kristján Eldjárn | |
---|---|
![]() | |
Forseti Íslands | |
Í embætti 1. ágúst 1968 – 1. ágúst 1980 | |
Forsætisráðherra | Bjarni Benediktsson Jóhann Hafstein Ólafur Jóhannesson Geir Hallgrímsson Ólafur Jóhannesson Benedikt Gröndal Gunnar Thoroddsen |
Forveri | Ásgeir Ásgeirsson |
Eftirmaður | Vigdís Finnbogadóttir |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 6. desember 1916 Tjörn í Svarfaðardal, Íslandi |
Látinn | 14. október 1982 (65 ára) Cleveland, Ohio, Bandaríkjunum |
Maki | Halldóra Ingólfsdóttir |
Börn | Ólöf, Þórarinn, Sigrún, Ingólfur |
Foreldrar | Þórarinn Kr. Eldjárn og Sigrún Sigurhjartardóttir |
Háskóli | Kaupmannahafnarháskóli, Háskóli Íslands |
Starf | Fornleifafræðingur, þjóðminjavörður |
Kristján var þjóðminjavörður og þjóðþekktur og vinsæll maður vegna þátta sinna í sjónvarpi um fornar minjar og muni í vörslu Þjóðminjasafnsins. Kristján var hispurslaus og alúðlegur í framgöngu og ávann sér miklar vinsældir þjóðarinnar. Hann sigraði mótframbjóðanda sinn, Gunnar Thoroddsen, í kosningunum 1968 með miklum atkvæðamun og var sjálfkjörinn eftir það.
Árið 1979 virtist stefna í að Kristján yrði að mynda utanþingsstjórn en hann komst hjá því þegar ríkisstjórn Benedikts Gröndals var mynduð.
Kona Kristjáns var Halldóra Ingólfsdóttir. Börn þeirra eru:
- Ólöf Eldjárn þýðandi og ritstjóri
- Þórarinn Eldjárn skáld og rithöfundur
- Sigrún Eldjárn myndlistarmaður
- Ingólfur Eldjárn tannlæknir