Gunnar Thoroddsen
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gunnar Thoroddsen (fæddur í Reykjavík 29. desember 1910, látinn 25. september 1983) var íslenskur lögfræðingur og stjórnmálamaður. Hann var varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá 1961 - 1965 og 1974 - 1981 og forsætisráðherra Íslands fyrir flokkinn frá 1980 til 1983. Áður hafði hann verið borgarstjóri Reykjavíkur (1947-1959), fjármálaráðherra (1959-1965) og hæstaréttardómari (1970). Gunnar bauð sig fram til forseta Íslands í forsetakosningunum árið 1968 en tapaði fyrir Kristjáni Eldjárn.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Íslands, Forseti ...
Gunnar Thoroddsen | |
---|---|
Forsætisráðherra Íslands | |
Í embætti 10. febrúar 1980 – 26. maí 1983 | |
Forseti | Kristján Eldjárn Vigdís Finnbogadóttir |
Forveri | Benedikt Gröndal |
Eftirmaður | Steingrímur Hermannsson |
Borgarstjóri Reykjavíkur | |
Í embætti 10. febrúar 1947 – 19. nóvember 1959 | |
Forveri | Bjarni Benediktsson |
Eftirmaður | Auður Auðuns og Geir Hallgrímsson |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. desember 1910 Reykjavík, Íslandi |
Látinn | 25. september 1983 (72 ára) Landspítalanum, Reykjavík, Íslandi |
Stjórnmálaflokkur | ![]() |
Maki | Vala Ásgeirsdóttir (g. 1941) |
Börn | Ásgeir (f. 1942), Sigurður (f. 1944), Dóra (f. 1948), María Kristín (f. 1954) |
Foreldrar | Sigurður Thoroddsen og María Kristín Claessen |
Háskóli | Háskóli Íslands |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Loka