Kóreustríðið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Kóreustríðið var stríð sem braust út 25. júní 1950 og lauk með vopnahléi 27. júlí 1953. Það hófst með innrás Alþýðulýðveldisins Kóreu (áhrifasvæði Sovétríkjanna) inn í Suður Kóreu (áður hernámssvæði Bandaríkjanna) en Suður Kóreumenn nutu aðstoðar Sameinuðu þjóðanna (SÞ), einkum Bandaríkjanna.
Staðreyndir strax Dagsetning, Staðsetning ...
Kóreustríðið | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af Kalda stríðinu | |||||||
Réttsælis frá efstu mynd: Bandarískir landgönguliðar ásamt skriðdreka brjótast í gegnum varnarlínur Kínverja; varnarsveitir Sameinuðu þjóðanna við Incheon; kóreskir flóttamenn fyrir framan bandarískan skriðdreka; bandarískir landgönguliðar við Incheon; bandarísk orrustuflugvél á flugi yfir Kóreu. | |||||||
| |||||||
Stríðsaðilar | |||||||
Suður-Kórea | Norður-Kórea | ||||||
Leiðtogar | |||||||
Mannfall og tjón | |||||||
178.405 látnir og 32.925 týndir. | 398.000–533.000 látnir og 145.000+ týndir. |
Loka
Kínverjar sendu her til aðstoðar Norður Kóreu þegar herir Suður Kóreu og SÞ nálguðust landamærin við Kína.
Stríðinu lauk með jafntefli og eftir það var skiptingin milli Norður- og Suður-Kóreu nokkurn vegin sú sama og fyrir stríðið.
Í stríðinu dóu meira en 2,5 milljónir manna, allt að helmingur óbreyttir kóreskir borgarar. Kóreustríðið er gjarnan talið fyrstu vopnuðu átök Kalda stríðsins.[1]