helgidagur kristinnar kirkju og lögboðinn frídagur á Íslandi From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvítasunnudagur (áður fyrr stundum nefndur hvítdrottinsdagur, píkisdagur eða pikkisdagur) er hátíð í kirkjuári kristinnar kirkju. Hann er 49. dagurinn eftir páskadag og tíundi dagurinn eftir uppstigningardag. Forngrískt heiti hans er πεντηκοστή [ἡμέρα] (pentekostē [hēmera]) sem merkir fimmtugasti (dagur). Dagsins er minnst sem þess dags þegar heilagur andi kom yfir lærisveinana og aðra fylgjendur Jesú eins og lýst er í Postulasögunni.
Mánudagurinn eftir hvítasunnudag, annar í hvítasunnu, er almennur frídagur á Íslandi og víðar í Evrópu. Einnig var fram til ársins 1770 þriðji í hvítasunnu almennur frídagur, en það ár var hann afhelgaður. Eins var með þriðja í jólum, þriðja í páskum og þrettándann, sem einnig höfðu verið helgi- og frídagar. Þessi fækkun helgidaga var hluti af helgidagaumbótunum í Dansk-norska ríkinu árið 1770.[1]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.