![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b3/Flag_of_Hamas.svg/langis-640px-Flag_of_Hamas.svg.png&w=640&q=50)
Hamas
herská palestínsk samtök súnnímúslima / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hamas, skammstöfun fyrir Harakat al-Muqawamah al-Islamiyyah (arabíska: Íslamska andspyrnuhreyfingin), eru herská palestínsk múslimasamtök sem starfa aðallega á Heimastjórnarsvæðum Palestínumanna. Samtökin stofnuðu stjórnmálaflokk og eru í meirihluta á þingi Palestínumanna.
Staðreyndir strax Íslamska andspyrnuhreyfingin Harakat al-Muqawamah al-Islamiyyahحركة المقاومة الإسلامية ...
Íslamska andspyrnuhreyfingin Harakat al-Muqawamah al-Islamiyyah حركة المقاومة الإسلامية | |
---|---|
![]() | |
Formaður | Ismail Haniyeh |
Varaformaður | Saleh al-Arour † |
Stofnár | 10. desember 1987; fyrir 36 árum (1987-12-10) |
Stofnandi | Ahmed Jassin |
Höfuðstöðvar | Gasaborg, Gasaströndinni, Palestínuríki |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Palestínsk þjóðernishyggja Íslamismi Íslömsk þjóðernishyggja Andzíonismi Andkommúnismi |
Einkennislitur | Grænn |
Sæti á palestínska löggjafarþinginu | ![]() |
Vefsíða | hamasonline.com |
Loka
Hamas voru stofnuð af Ahmed Jassin síðla árs 1987, þá sem klofningshreyfing úr Bræðralagi múslima, og helga sig stofnun íslamsks ríkis í Palestínu. Ísraelsríki, Bandaríkin, Evrópusambandið og fleiri lönd hafa skilgreint samtökin sem hryðjuverkasamtök. Þrátt fyrir þetta reka samtökin líka ýmsa samfélagsþjónustu svo sem heilsugæslu og skóla.