![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/16/Gambia_%2528orthographic_projection_with_inset%2529.svg/langis-640px-Gambia_%2528orthographic_projection_with_inset%2529.svg.png&w=640&q=50)
Gambía
land í Vestur-Afríku / From Wikipedia, the free encyclopedia
Gambía (mandinka: Kambiya ߞߊߡߓߌߦߊ; wolof: Gámbi, fula: Gammbi) er land í Vestur-Afríku. Landið liggur að Atlantshafi í vestri en er annars umlukið Senegal úr öðrum áttum. Gambía er minnsta landið á meginlandi Afríku. Það nær aðeins yfir bakka Gambíufljóts og er ekki nema 48,2 km á breidd þar sem það er breiðast. Landið er rúmlega 10.000 ferkílómetrar að stærð og þar búa tæplega 2 milljónir. Höfuðborgin er Banjul en stærstu borgirnar eru Serekunda og Brikama.
Republic of The Gambia | |
![]() |
![]() |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Progress, Peace, Prosperity (enska: Framþróun, Friður, Farsæld) | |
Þjóðsöngur: For The Gambia Our Homeland | |
![]() | |
Höfuðborg | Banjul |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Lýðveldi |
Forseti | Adama Barrow |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 18. febrúar 1965 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
159. sæti 10.689 km² 11,5 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
144. sæti 1.857.181 176,1/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 5,420 millj. dala (167. sæti) |
• Á mann | 2.240 dalir (169. sæti) |
VÞL (2019) | ![]() |
Gjaldmiðill | dalasi |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .gm |
Landsnúmer | +220 |
Gambía var upphaflega portúgölsk nýlenda en Bretar hófu verslun þar snemma á 17. öld. Þrælaverslun við Evrópumenn varð grunnurinn að stofnun nýlendu við ósa Gambíufljóts. Bretar lögðu síðan landið undir sig, ásamt Senegal, í Sjö ára stríðinu. Árið 1783 var Senegal skilað til Frakka en Bretar héldu yfirráðum yfir Gambíufljóti. Gambía varð sjálfstæð nýlenda árið 1888. Landið fékk heimastjórn árið 1962 og fullt sjálfstæði árið 1965 og varð hluti af Breska samveldinu. Frá sjálfstæði hefur Gambía aðeins haft þrjá forseta. Dawda Kairaba Jawara varð forsætisráðherra 1962 og síðan forseti þegar landið varð lýðveldi 1970. Hann stóðst valdaránstilraun 1981 með aðstoð senegalska hersins. Árið 1994 var honum svo steypt af stóli af herforingjaráði og Yahya Jammeh ofursti komst til valda. Hann náði kjöri í fyrstu kosningunum sem haldnar voru eftir valdaránið árið 1997. Árið 2013 sagði landið sig úr Breska samveldinu. Núverandi forseti, Adama Barrow, er fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins. Hann hefur hafið ferli til að endurheimta stöðu landsins hjá Breska samveldinu.
Efnahagslíf Gambíu byggist á landbúnaði, fiskveiðum og ferðaþjónustu. Árið 2015 bjó nær helmingur landsmanna við fátækt. Í dreifbýli búa allt að 70% íbúa við fátækt.[1]