Fósturvísir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Fósturvísir er frumstig þroskans í sumum lífverum.[lower-alpha 2] Í lífverum sem fjölga sér með kynæxlun verður fósturvísir til út frá okfrumunni, þeirri frumu sem verður til við frjóvgun þegar eggfruma konu og sæðisfruma karls sameinast. Okfruman skiptir sér í fleiri frumur með frumuskiptingu, og fósturvísir verður til.
Í meðgöngu mannsins kallast barn fósturvísir þar til á 9. viku eftir frjóvgun (sem er 11. vika meðgöngu),[lower-alpha 1] eftir það kallast það fóstur.