![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9c/Flag_of_Brunei.svg/langis-640px-Flag_of_Brunei.svg.png&w=640&q=50)
Fáni Brúnei
From Wikipedia, the free encyclopedia
Á fána Brúnei sést skjaldarmerki Brúnei á gulum fleti sem er rofinn skáhalt af svörtum og hvítum borðum. Guli flöturinn táknar soldáninn af Brúnei. Á rauða skjaldarmerkinu sést hálfmáni sem vísar upp og sólhlíf ásamt höndum til beggja hliða.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9c/Flag_of_Brunei.svg/640px-Flag_of_Brunei.svg.png)
Í Suðaustur-Asíu er gulur hefðbundinn litur kóngafólks. Því er líka gulur flötur notaður á konungsfánum Malasíu og Taílands og á fána forseta Indónesíu. Hálfmáninn táknar íslamstrú, sólhlífin táknar einveldið og hendurnar til hliðanna tákna velvild ríkisstjórnarinnar. Svörtu og hvítu borðarnir tákna yfirráðherra Brúnei,[1] sem gegndu eitt sinn saman hlutverki ríkisstjóra og síðan, eftir að soldáninn varð lögráða, helstu ráðgjafa hans. Hvíta röndin táknar fyrsta ráðherrann (Pengiran Bendahara) og sú svarta táknar annan ráðherrann (Pengiran Pemancha, sem fór fyrir utanríkismálum). Hvíta röndin er um 12 prósentum víðari en sú svarta.[2][3]
Á hálfmánanum eru kjörorð Brúnei rituð á arabísku: „Alltaf í þjónustu undir leiðsögn guðs“ (arabíska: الدائمون المحسنون بالهدى). Á borðanum fyrir neðan hálfmánann stendur Brunei Darussalam, sem merkir „Brúnei, aðsetur friðarins“ (arabíska: بروني دارالسلام).