From Wikipedia, the free encyclopedia
Hvítaskur (fræðiheiti: Fraxinus americana[2]) er tegund af aski sem vex í suðurhluta Kanada og austurhluta Bandaríkjanna, frá Nova Scotia vestur til Minnesota, og suður til norður-Flórída og suðvestur-Texas.[3] Var áður algengur en hefur á síðari árum fækkað mjög vegna sníkjudýrsins Agrilus planipennis.
Hvítaskur | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Fraxinus americana L. | ||||||||||||||||||
Útbreiðslusvæði | ||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||
Samheiti
|
Hvítaskur er meðalstórt tré, verður allt að 26 metra hátt, einstaka sinnum að 40 m. Börkurinn er dökkgrár, þykkur sprunginn með aldri. Vetrarbrum eru dökkbrún með mjúkri áferð. Blöðin eru gagnstæð og samsett með oftast 9 smáblöðum. Blómin koma að vori, rétt á undan blöðunum, í gisinni blómskipan, þau eru lítt áberandi og án krónublaða, enda vindfrjóvguð. Hvert tré er einkynja, annað hvort karl eða kvenkyns. Fræin eru 3-5 cm löng með væng. Hann líkist mjög kvekaraaski sem er frá sömu slóðum.
Þessi tegund hefur lítið eitt verið reynd hérlendis og kelur lítið.[5]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.