![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9b/BestaLeague.png/640px-BestaLeague.png&w=640&q=50)
Besta deild karla
Efsta deild karla í knattspyrnu á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Besta deild karla er efsta deild karla í knattspyrnu á Íslandi. Deildin er rekin af Íslenska knattspyrnusambandinu og var stofnuð árið 1912. Deildin var í fyrstu spiluð undir nafninu "1. deild karla" og ekki nefnd úrvalsdeild fyrr en 1997. Deildin er mynduð af 12 félögum sem leika hver gegn öðrum í tvöfaldri umferð á heima- og útivöllum. Fjöldi stiga við lok hvers tímabils ákvarðar hvaða félagslið er Íslandsmeistari og hvaða tvö félög falla niður og eiga deildaskipti við þau tvö stigahæstu í 1.deild karla. Stigahæsta félag deildarinnar öðlast þátttökurétt í annarri umferð Meistaradeildar Evrópu. Það í öðru sæti öðlast þátttökurétt í Sambandsdeild Evrópu. Þriðja sæti deildarinnar getur einnig gefið þátttökurétt í evrópukeppni fari svo að efra félag hafi þegar öðlast þann rétt með sigri í Bikarkeppninni. Árið 2022 var nafni deildarinnar breytt í Besta deild karla, deildinni er skipt í tvo helminga, 6 lið í efri helmingi og 6 í neðri. Lið í neðri helmingi geta fallið niður í 1. deild.
![]() | |
Stofnuð | 1912 (undir nafninu „meistaradeild“)[1] |
---|---|
Ríki | ![]() |
Fall í | 1. deild karla |
Fjöldi liða | 12 |
Stig á píramída | 1. stig |
Bikarar | Mjólkurbikarinn Lengjubikarinn |
Núverandi meistarar | ![]() |
Sigursælasta lið | ![]() |
Mótasíður | Heimasíða mótaraðarinnar Mótasíða KSÍ |