![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/thumb/5/56/KR_Reykjav%25C3%25ADk.png/640px-KR_Reykjav%25C3%25ADk.png&w=640&q=50)
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
fjölíþróttafélag í Vesturbænum í Reykjavík / From Wikipedia, the free encyclopedia
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, er íþróttafélag í Vesturbænum í Reykjavík. Félagið var stofnað 16. febrúar árið 1899 og er elsta félag sinnar tegundar á Íslandi. Það var stofnað fyrst sem knattspyrnufélag, en núna eru starfræktar margar deildir innan félagsins. KR hefur unnið úrvalsdeild karla í knattspyrnu 27 sinnum, oftast allra félaga og er KR eitt sigursælasta lið landsins í þremur vinsælustu íþróttagreinum landsins, handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu þar sem það hefur unnið 103 Íslands- og bikarmeistaratitla í karla- og kvennaflokki. KR er það lið sem á sér flesta stuðningsmenn á landinu.[1][2][3][4]
- Fyrir nánari upplýsingar um knattspyrnudeild KR sjá greinina Knattspyrnudeild KR
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/thumb/5/56/KR_Reykjav%C3%ADk.png/640px-KR_Reykjav%C3%ADk.png)
Staðreyndir strax Virkar deildir ...
Virkar deildir Knattspyrnufélags Reykjavíkur | ||
---|---|---|
![]() Knattspyrna |
![]() Körfubolti |
![]() Handbolti |
![]() Badminton |
![]() Borðtennis |
![]() Glíma |
![]() Keila |
![]() Skíði |
![]() Sund |
Loka