![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Carpetright_store_after_Tottenham_riots.jpg/640px-Carpetright_store_after_Tottenham_riots.jpg&w=640&q=50)
Óeirðirnar í London 2011
From Wikipedia, the free encyclopedia
Óeirðirnar í London 2011 hófust með ránum og íkveikjum þann 6. ágúst 2011 í hverfinu Tottenham í Norður-London. Óeirðirnar brotust út vegna dauða Mark Duggan sem var skotinn til bana af lögreglunni.[1] Óeirðirnar urðu líka í öðrum hverfum borgarinnar, þar á meðal Brixton, Clapham, Croydon, Enfield, Ealing, Hackney, Lewisham og Peckham.[2] Þann 8. ágúst kom forsætisráðherra Bretlands David Cameron heim úr fríi á Ítalíu vegna óeirðanna og fundaði með COBR (e. Cabinet Office Briefing Room).[3] Cameron tilkynnti 9. ágúst að Breska þingið hefði verið kallað saman úr sumarfríi til að ræða óeirðirnar og að 16.000 lögreglumenn yrðu á götum borgarinnar þann daginn.[4] Daginn áður voru aðeins 6.000 lögreglumenn á götunum.[5]
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3c/Carpetright_store_after_Tottenham_riots.jpg/640px-Carpetright_store_after_Tottenham_riots.jpg)
Óeirðir brutust líka út í Birmingham, Bristol, Liverpool og Manchester í kjölfar óeirðanna í London.[2][5] Að minnsta kosti 563 hafa verið handteknir vegna óeirðanna og 105 hafa verið kærðir.[5]