Ágústus
fyrsti rómverski keisarinn frá 27 f.Kr. til 14 e.Kr / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ágústus einnig nefndur Augustus, Cæsar Ágústus, Caesar Augustus, Octavíanus eða Octavíanus Ágústus (Latína: IMPERATOR CAESAR DIVI FILIVS AVGVSTVS[1]; 23. september 63 f.Kr. – 19. ágúst 14 e.Kr.), var fyrsti og einn mikilvægasti keisari Rómaveldis, enda þótt hann upphefði ekki stöðu sína og kysi fremur titilinn princeps, sem þekktist frá lýðveldistímanum og er venjulega þýddur „fyrstur borgaranna“. Nafn Ágústusar, sem hét raunverulega Octavíanus og þar áður Octavíus, var upphaflega virðingartitill (myndaður af sögninni augeo, sem þýðir að auka eða upphefja, lofa eða dýrka), sem öldungaráð Rómar veitti honum árið 27 f.Kr. Sú venja er meðal sagnfræðinga að nota nafnið Octavíanus til að vísa til hans fyrir árið 27 f.Kr. en Ágústus eftir árið 27 f.Kr. Verður þeirri reglu fylgt hér.
Ágústus | |
Rómverskur keisari | |
Valdatími | 27 f.Kr. – 14 e.Kr. |
---|---|
Fæddur: |
23. september 63 f.Kr. |
Fæðingarstaður | Róm |
Dáinn: |
19. ágúst 14 e.Kr. |
Dánarstaður | Nola (við Napólí) |
Forveri | enginn (erfingi Júlíusar Caesars) |
Eftirmaður | Tíberíus |
Maki/makar | Claudia Pulchra 42 – 40 f.Kr. Scribonia 40 – 38 f.Kr. Livia Drusilla 38 f.Kr. til 14 e.Kr. |
Börn | Julia eldri |
Faðir | Gaius Octavius |
Móðir | Atia Balba Caesonia |
Fæðingarnafn | Gaius Octavius |
Keisaranafn | Imperator Caesar Divi Filius Augustus |
Ætt | Julíska-claudíska ættin |
Octavíanus var erfingi Júlíusar Cæsars, sem var ömmubróðir hans. Eftir morðið á Cæsari gekk Octavíanus í bandalag með Marcusi Antoniusi og Marcusi Lepidusi. Þegar slitnaði upp úr bandalaginu kom til átaka milli Marcusar Antoniusar og Octavíanusar, sem hafði betur. Í kjölfarið komst Octavíanus til valda í Róm. Hann viðhélt hefðum rómverska lýðveldisins að forminu til en var í reynd sjálfráður einvaldur í yfir 40 ár. Valdatími hans myndar skiptinguna á milli lýðveldistímans og keisaratímans í Róm en keisaratíminn er venjulega talinn hefjast árið 27 f.Kr. Hann batt enda á borgarastríð sem áður hafði geisað og leiddi Róm inn í nýjan tíma hagsælda og friðar, Pax Romana eða Rómarfriðarins. Hann var kvæntur Liviu Drusillu í 51 ár.